Hópurinn lagði af stað klukkan 11 á laugardagsmorgun. Ljósmyndir: gbþ

Hjólað, hlaupið og gengið yfir Skarðsheiði

Hjólreiðafélag Vesturlands fór laugardaginn 3. júní í sína árlegu ferð yfir Skarðsheiði. Hjólarar fóru rúmlega 20 kílómetra leið, lögðu af stað rétt ofan við Hreppslaug í Skorradal klukkan 11 og enduðu við þjóðveginn neðan við sumarbúðirnar í Ölveri. Hlauparar úr hlaupahópnum Flandra voru samferða hjólafólkinu yfir heiðina og einnig var nokkuð um göngufólk, sem gekk undir leiðsögn Jónínu Pálsdóttur úr Ferðafélagi Borgarfjarðarhéraðs. Alls voru 28 manns sem tóku þátt í viðburðinum en eitthvað var um forföll á síðustu stundu vegna veðurs. Rigning og strekkingur létu finna fyrir sér fyrsta klukkutímann eða svo og skyggni var lítið. Þorsteinn og Guðbjörg úr Björgunarsveitinni Heiðari voru með í för á sexhjólum, þátttakendum til halds og trausts, viðbúin ef eitthvað óvænt skyldi koma upp á og útbýttu drykkjarföngum og Prins Pólói á miðri leið. Öll komu heil niður af heiðinni en viðbúið er að fjölmennt verði aftur í ferðina að ári í von um að skyggni verði betra og útsýni meira.

Hjólað, hlaupið og gengið yfir Skarðsheiði - Skessuhorn