
Slíta viðræðum um einkarekinn grunnskóla í Laugargerði
Aukafundur var haldinn í sveitarstjórn Eyja- og Miklaholtshrepps í gær. Var þar rædd staðan á viðræðum við óstofnað ehf. um rekstur einkarekins skóla í Laugargerði og leigu eigna sveitarfélagsins í Laugargerði. Eru það foreldrar barna í Laugargerðisskóla sem standa að baki óstofnuðu ehf. og hafa haft þá hugmynd að búa til einkarekinn skóla í Laugargerði eftir að Eyja- og Miklaholtshreppur ákvað að hætta rekstri grunnskólans þar. Í maí samdi hreppurinn við Sveitarfélagið Stykkishólm um að veita börnum með lögheimili í hreppnum skólaþjónustu. Sagði Eggert Kjartansson, sem staðið hefur í forsvari fyrir óstofnað ehf. og foreldra, í samtali við Skessuhorn í maí að hann teldi eina möguleikann á því að sátt næðist í samfélaginu vera að hafa þessa tvo möguleika til staðar; að foreldrar geti valið um skólavist fyrir sín börn í Laugargerði eða Stykkishólmi.
Oddviti og varaoddviti hreppsins voru skipaðir fulltrúar sveitarfélagsins til að eiga viðræður við óstofnað ehf. um þjónustusamning vegna einkarekins skóla og leigu á eignum í Laugargerði. Hefur sveitarstjórn nú ákveðið að slíta viðræðum við félagið, þar sem fulltrúar töldu framvindu viðræðanna ekki ásættanlegar fyrir hönd sveitarfélagsins né samfélagsins í heild, og því er ljóst að ekki verður rekinn skóli í Laugargerði næsta vetur.
Í bókun sveitarstjórnar segir orðrétt: „Í upphafi viðræðna við hið óstofnaða félag um einkarekinn skóla í Laugargerði var sveitarfélagið tilbúið að greiða til einkarekins skóla með hverju barni, sem að lögheimili ætti í Eyja- og Miklaholtshreppi, sem nemur sambærilegri upphæð og greidd verður til Sveitarfélagsins Stykkishólms. Húsnæði Laugargerðisskóla og svæðið þar um kring til afnota, var boðið endurgjaldslaust til eins árs. Jafnframt fór sveitarstjórn fram á að hið óstofnaða félag sýndi fram á fjárhagslega og faglega burði til reksturs einkarekins skóla. Hið óstofnaða félag hefur hvorki sýnt sveitarstjórn fram á fjárhagslega né faglega burði til reksturs einkarekins skóla.
Hið óstofnaða félag hefur sótt það stíft að samningstíminn yrði lengri en eitt ár. Fyrir liggur að hluti húsnæðissins yrði nýttur til ferðaþjónustu hjá hinu óstofnaða félagi. Sveitarstjórn telur að vel athuguðu máli að ekki sér sé stætt á að færa einum rekstraraðila í ferðaþjónustu í sveitarfélaginu aðstöðu til lengri tíma án undangenginnar auglýsingar um leigu. Með því væri verið að skapa ójafna stöðu ferðaþjónustuaðila í sveitarfélaginu og ekki gætt að jafnræðisreglu. Jafnframt má færa rök fyrir því að ekki væri verið að verja fjármunum sveitarfélagsins á réttmætan máta.
Sveitarstjórn þykir ljóst, miðað við fyrirliggjandi drög að þjónustu- og leigusamningi, að af þeim muni hljótast verulegur aukinn kostnaður fyrir sveitarfélagið miðað við þá samninga sem sveitarfélagið hefur nú þegar gert við Sveitarfélagið Stykkishólm um leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla. Þar af leiðandi sér sveitarstjórn ekki grundvöll fyrir áframhaldandi viðræðum við hið óstofnaða félag um rekstur einkarekins skóla í Laugargerði,“ segir í bókun sveitarstjórnar Eyja- og Miklaholtshrepps.