Páll Snævar, Bragi Þór, Ingibjörg Þóranna og Björn Bjarki. Ljósm. dalir.is

Tilraunaverkefni fær hátt í 13 milljónir í styrk

Í vikunni barst jákvætt svar frá Byggðastofnun sem úthlutað hafði tæpum þrettán milljónum króna í styrk vegna tilraunaverkefnis sem snýst um að samþætta og opna akstur úr Búðardal í Borgarnes fyrir bæði framhaldsskólanemendur og almenning. Þannig verður meðal annars hægt að bjóða framhaldsskólanemum í Dalabyggð skólaakstur úr Búðardal  í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Markmiðið er að bæta þjónustu við nemendur og almenning sem og að skapa betri nýtingu í rekstri þessara þjónustuþátta.

Tilraunaverkefni fær hátt í 13 milljónir í styrk - Skessuhorn