Fréttir

true

Skoðunardagur fornbíla verður 26. maí

Árlegur skoðunardagurinn fornbíla verður hjá Frumherja við Sólbakka í Borgarnesi föstudaginn 26. maí frá kl. 13 – 17. Bílar í eigu félagsmanna í Fornbílafjelagi Borgarfjarðar, sem geymdir eru í Brákarey, verða m.a. teknir til skoðunar. Á vegum félagsins munu þeir Kristján og Gunnar verða til staðar í eyjunni frá kl. 15 varðandi það að taka…Lesa meira

true

Speglahús risið í landi Ytri-Skeljabrekku

Búið er að reisa nýtt speglahús til útleigu fyrir ferðamenn í Hjallabrekku 1 sem er í landi Ytri-Skeljabrekku í Andakíl. Ingibjörg Karlsdóttir eigandi hússins birtir meðfylgjandi mynd á FB samhliða því að hún auglýsir eftir hreingerningarfólki sem vill taka að sér þrif á gistiaðstöðunni. Nú stendur yfir jarðvinna og framkvæmdir í kringum húsið og er…Lesa meira

true

Kalli á Mími er allra karla elstur – 105 ára í dag

Karl Sigurðsson á Ísafirði er 105 ára í dag, fæddur 14. maí 1918 en hann var skírður 1. desember 1918, á þeim merkisdegi þegar Ísland varð fullvalda ríki. Enginn karl á Vestfjörðum hefur náð hærri aldri og aðeins ein kona, Torfhildur Torfadóttir, sem varð 107 ára. Karl er jafnframt elstur núlifandi karla á Íslandi. Á…Lesa meira

true

Snjóar við Breiðafjörðinn í nótt

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir Breiðafjörð frá því klukkan 3 í nótt og til hádegis á morgun. Það verður norðaustan 8-15 m/s og snjókoma eða skafrenningur og lítið skyggni með köflum, einkum á fjallvegum. Veðurstofan telur varsamt að vera á ferðinni á vanbúnum ökutækjum.Lesa meira

true

Samtök víkinga og söguferðaþjónustu fóru um Vesturland

Í byrjun mánaðarins fór fram aðalfundur samtaka sem nefnast Destination Viking Association (DVA). Fundurinn var hér á landi, að stórum hluta haldinn á Vesturlandi en einnig var ferðast um Suðurland. Um 40 manns frá níu löndum tóku þátt í fundinum. Þá voru einnig félagar fá Samtökum um söguferðaþjónustu (SSF) sem eru aðilar að samtökunum frá…Lesa meira

true

Samið um fjármögnun fimm björgunarskipa til viðbótar

Á landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem lauk í gær á Akureyri, rituðu Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra og Otti Rafn Sigmarsson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, undir samkomlag um aðkomu ríkisins að fjármögnun fimm nýrra björgunarskipa. Þegar hefur verið samið um smíði þriggja nýrra skipa, tvö verið afhent til Vestmannaeyja og Siglufjarðar, og von er á því þriðja í haust.…Lesa meira

true

Víðtæk leit á Vatnajökli í gær

Um miðjan dag í gær barst hjálparbeiðni frá hópi fólks sem var á ferð yfir Vatnajökul á gönguskíðum. Kona í hópnum hafði fallið og fengið farangurs sleða sem hún dró á eftir sér, í höfuðið. Í tilkynningu frá Landsbjörgu kemur fram að ljóst hafi verið í upphafi að sækja þyrfti á jökulinn úr tveimur áttum…Lesa meira

true

Söngvakeppnin verður í Svíþjóð fimmtíu árum eftir ABBA sigurinn

Það varð ljóst í kvöld að Svíþjóð bar sigur úr býtum í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Hin sænska Loreen stóð uppi sem sigurvegari og var þetta í annað skipti sem hún sigrar í keppninni, gerði það einnig árið 2012. Á næsta ári verða rétt fimmtíu ár frá því ABBA sigraði í keppninni með lag sitt Waterloo…Lesa meira

true

Gleðin við völd þegar Runni hélt upp á afmælið sitt – myndir

Runólfur Guðmundsson útgerðarmaður og stjórnarformaður í Guðmundi Runólfssyni hf í Grundarfirði, lífskúnstner og gleðigjafi, fagnaði í gær 75 ára afmæli sínu. Eins og hans var von og vísa var það gert með myndarbrag. Eftir hádegið var opið hús í fiskvinnslunni og á netaverkstæðinu en um kvöldið var slegið upp afmælisveislu í Samkomuhúsinu, með miklum söng…Lesa meira

true

Byrja að sekta fyrir nagladekkin

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi í gær kemur fram að nú eiga allir sem ætla að vera á ferðinni á ökutækjum að vera komnir á hjólbarða án nagla. „Við munum byrja að sekta þá sem enn aka um götur á nagladekkjum og því betra að huga strax að dekkjaskiptum. 15. apríl var síðasti dagurinn…Lesa meira