
Þegar heimsókn á Landnámssetrið í Borgarnesi lauk var gestum boðið að gæða sér á íslensku Brennivíni og hákarli. Helga Margrét í Landsnámssetrinu og Rögnvaldur útdeildu veitingunum. Ljósm. mm.
Samtök víkinga og söguferðaþjónustu fóru um Vesturland
Í byrjun mánaðarins fór fram aðalfundur samtaka sem nefnast Destination Viking Association (DVA). Fundurinn var hér á landi, að stórum hluta haldinn á Vesturlandi en einnig var ferðast um Suðurland. Um 40 manns frá níu löndum tóku þátt í fundinum. Þá voru einnig félagar fá Samtökum um söguferðaþjónustu (SSF) sem eru aðilar að samtökunum frá Íslandi ásamt Þingvöllum. „DVA hefur m.a. umsjón með The Viking Cultural Trail of Europe,“ segir Rögnvaldur Guðmundsson sem m.a. er formaður Ólafsdalsfélagsins en hann stýrði fundinum og leiðsagði hópnum. Fundað var í Reykholti í Borgarfirði en farið í skoðunarferðir um Dali, Borgarfjörð og í Árnessýslu. „Veður lék við okkur þátttakendur þessa daga,“ sagði Rögnvaldur í samtal við Skessuhorn.