
Sigríður Ingibjörg dóttir Karls tók þessa mynd af föður sínum í gær. Þegar henni var bent á að þetta virtist vera mynd af 80 ára gömlum manni sagði hún: „Enda er hann ekki degi eldri í anda, alltaf hress.“ Ljósm. af Langlífi á FB.
Kalli á Mími er allra karla elstur – 105 ára í dag
Karl Sigurðsson á Ísafirði er 105 ára í dag, fæddur 14. maí 1918 en hann var skírður 1. desember 1918, á þeim merkisdegi þegar Ísland varð fullvalda ríki. Enginn karl á Vestfjörðum hefur náð hærri aldri og aðeins ein kona, Torfhildur Torfadóttir, sem varð 107 ára. Karl er jafnframt elstur núlifandi karla á Íslandi. Á FB síðunni Langlífi rifjar Jónas Ragnarsson upp ævi Karls: