Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar fór fram á Akureyri undir lok síðustu viku. Ljósm. Landsbjörg.

Samið um fjármögnun fimm björgunarskipa til viðbótar

Á landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem lauk í gær á Akureyri, rituðu Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra og Otti Rafn Sigmarsson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, undir samkomlag um aðkomu ríkisins að fjármögnun fimm nýrra björgunarskipa. Þegar hefur verið samið um smíði þriggja nýrra skipa, tvö verið afhent til Vestmannaeyja og Siglufjarðar, og von er á því þriðja í haust. Þessi samningur er liður í því verkefni að endurnýja öll 13 björgunarskip Landsbjargar. Samingurinn tryggir fjármögnun ríkisins á um helmingi kaupverðs næstu fimm skipa.

Samið um fjármögnun fimm björgunarskipa til viðbótar - Skessuhorn