
Snjóar við Breiðafjörðinn í nótt
Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir Breiðafjörð frá því klukkan 3 í nótt og til hádegis á morgun. Það verður norðaustan 8-15 m/s og snjókoma eða skafrenningur og lítið skyggni með köflum, einkum á fjallvegum. Veðurstofan telur varsamt að vera á ferðinni á vanbúnum ökutækjum.