Fréttir

true

Ansi spenntir fyrir sumrinu

Skallagrímur leikur í fjórðu deildinni í fótbolta fjórða árið í röð í sumar en liðið féll úr þeirri þriðju árið 2019. Liðið endaði í þriðja sæti í A riðli fjórðu deildar í fyrra, vann ellefu leiki og tapaði þremur. Eftir tímabilið leit allt út fyrir að Skallagrímur myndi spila í 5. deild á næsta tímabili…Lesa meira

true

Næturlokanir í Hvalfjarðargöngum

Vegna viðhaldsvinnu og þrifa voru Hvalfjarðargöng lokuð síðustu nótt. Vanhöld voru af hálfu Vegagerðarinnar á að vara við lokuninni og engar tilkynningar til að mynda sendar á staðarmiðla. Því kom lokunin mörgum vegfarendum í opna skjöldu, sem urðu því að aka veginn fyrir Hvalfjörð. En hreinsun heldur áfram næstu nætur; „verða Hvalfjarðargöng lokuð aðfararnætur fimmtudags…Lesa meira

true

Ákvað að hanna íþróttaföt sjálf vegna lítils úrvals á Íslandi

Borgnesingurinn Karen Ýr Finnbogadóttir opnaði nú í apríl netverslunina Ambetic.com. Þar selur hún Ambetic íþróttaföt en hún hannar þau sjálf í samvinnu við erlenda saumastofu. Nafnið Ambetic segir Karen að sé samsuða orðanna ambitious athletic, á íslensku; metnaðarfullur íþróttamaður. „Það var mjög erfitt að finna nafn á vörumerkið en þetta varð að lokum lendingin,“ segir…Lesa meira

true

Breiðfirðingur ársins kominn út

Tímaritið Breiðfirðingur er komið úr prentun og var kynnt á Degi Breiðfirðings sunnudaginn 7. maí í Breiðfirðingabúð. Í tilkynningu um efni í ritinu að þessu sinni segir á FB síðu Breiðfirðingafélagsins: „Efni ritsins er fjölbreytt að vanda. Hryggjarstykkið má telja merka grein Sverris Jakobssonar prófessors um Völd og auð við Breiðafjörð á fimmtándu öld. Í…Lesa meira

true

Leggja áhersluna á að þjónusta byggðarlagið

Heimsókn í KM þjónustuna í Búðardal. Vilhjálmur Hörður Guðlaugsson, oftast kallaður Villi, er eigandi KM þjónustunnar í Búðardal. Hann tók við rekstrinum í september 2020 af hjónunum Karli Inga Karlssyni og Steinunni Matthíasdóttur. Villi er léttur í lund þegar blaðamann ber að garði í KM þjónustuna dag einn í lok aprílmánaðar. Rekstur fyrirtækisins hefur gengið…Lesa meira

true

Leitað í þekkingarsjóð Norðmanna um beislun vindorku

Undir lok apríl hélt um þrjátíu manna sendinefnd héðan til Noregs í fjögurra daga fræðslu- og kynnisferð um nýtingu Norðmanna á vindorku. Ferðin var sérsniðin fyrir sveitarstjórnarfólk en einnig voru með í för starfsmenn ýmissa stofnana, fyrirtækja og ráðuneytis sem höndla um mál sem tengjast væntanlegri beislun vindorku hér á landi. Samkvæmt kynningu um ferðina…Lesa meira

true

Óvenjuleg stjarna á nýfæddu folaldi

Þetta folald kom í heiminn í dag á bænum Grímsstöðum í Reykholtsdal. Hörður Guðmundsson bóndi birti mynd af því á FB síðunni sinni. Stjarnan eða blesan á því er vissulega óvenjuleg. Glöggir FB vinir Harðar voru snöggir að benda á hið augljósa að skrautið á enni þess væri eins og sæðisfruma í laginu. Einnig var…Lesa meira

true

Vaxandi stuðningur við ESB aðild

Nú eru 44,2% þjóðarinnar fylgjandi aðild Íslands að ESB. Sá stuðningur hefur aldrei mælst meiri, samkvæmt nýlegri könnun Maskínu fyrir Evrópuhreyfinguna. Þeim fækkar sem eru á móti inngöngu í sambandið og eru nú komnir niður í 33,9%. Ef einungis þeir sem taka afstöðu er taldir eru 56,6% hlynntir aðild en 44,4% andvígir. 59% vill að…Lesa meira

true

Skákveisla í boði Taflfélagsins í Snæfellsbæ

Á laugardaginn hélt Taflfélag Snæfellsbæjar minningarmót í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík um þá Hrafn Jökulsson, rithöfund og áhrifamann í skáksögu Íslands, og Ottó Árnason ljóðskáld sem stofnaði á sínum tíma Taflfélag Ólafsvíkur. Mótið hófst klukkan 13 eftir hádegi og kepptar voru átta umferðir eftir Monradformi í átta flokkum. Veglegt verðlaunafé var í opnum flokki þar…Lesa meira

true

Álfurinn fór með Diljá til Liverpool

Í tilefni af því að Álfasala SÁÁ hefst á morgun kom Diljá Pétursdóttir við hjá SÁÁ og tók Álf í yfirstærð með sér á Eurovision í Liverpool. „Hann verður lukkutröllið mitt,“ segir Diljá. „Álfurinn boðar gæfu og gleði fyrir alla sem fá hjálp frá SÁÁ. Ég er viss um að þessir jákvæðu álfastraumar fylgja mér…Lesa meira