
Leitað í þekkingarsjóð Norðmanna um beislun vindorku
Undir lok apríl hélt um þrjátíu manna sendinefnd héðan til Noregs í fjögurra daga fræðslu- og kynnisferð um nýtingu Norðmanna á vindorku. Ferðin var sérsniðin fyrir sveitarstjórnarfólk en einnig voru með í för starfsmenn ýmissa stofnana, fyrirtækja og ráðuneytis sem höndla um mál sem tengjast væntanlegri beislun vindorku hér á landi. Samkvæmt kynningu um ferðina var markmið hennar að veita þátttakendum innsýn í orkumálin í Noregi og varpa ljósi á ólík viðfangsefni og reynslu, allt frá stefnumótun og löggjöf til innleiðingar og reksturs vindorkuvera frá sjónarhorni ólíkra hagaðila. Náttúruverndarsjónarmið, fuglalíf, skattlagning og raunar allt sem viðkemur vindorkuframleiðslu var til umræðu. Nokkur vindorkuver voru heimsótt í ferðinni og kynningar voru af hálfu lykilaðila í norsku vindorku umhverfi. Þar á meðal frá fyrirtækjum á borð við Statsnet (norska Landsvirkjunin) og vindmyllufyrirtækinu Lyse.