Fréttir

true

Stemning við höfnina þegar bátarnir komu að landi – myndasyrpa

Það var fallegt við höfnina á Akranesi síðdegis í dag þegar blaðamaður Skessuhorns kom þar við. Verið var að landa áburði úr norska flutningaskipinu Kjervaagsund, en við löndunarbryggjuna voru fyrstu strandveiðibátarnir að koma að landi eftir veiðiferð dagsins. Nú hafa um 13 bátar fengið úthlutað leyfi frá Akranesi og eru fimm eða sex þeirra byrjaðir…Lesa meira

true

Aðalfundur SBK og haldið upp á 90 ára afmælið

Aðalfundur Sambands borgfirskra kvenna var haldinn að Hótel Húsafelli fimmtudaginn 27. apríl síðastliðinn í blíðskaparverði; sólskini og léttri norðanátt. Á fundinn mættu yfir 30 konur frá kvenfélögunum í héraðinu. Einnig heiðraði Dagmar Elín Sigurðardóttir forseti Kvenfélagasambands Íslands fundinn og færði SBK forláta gestabók að gjöf. Að loknum aðalfundi var svo haldið í hátíðarkvöldverð í veitingasal…Lesa meira

true

„Stefnum á að gera okkur gildandi í toppbaráttuna“

Knattspyrnufélagið Kári leikur í 3. deild karla í ár eins og í fyrra en þá endaði liðið í 5. sæti deildarinnar. Aron Ýmir Pétursson tók við liði Kára fyrir þetta tímabil og honum til aðstoðar er fyrrum fyrirliði Kára, Andri Júlíusson. Blaðamaður Skessuhorns heyrði hljóðið í Aroni Ými í síðustu viku fyrir fyrsta leik sem…Lesa meira

true

Dýrin í Hálsaskógi sýnd í Grunnskólanum í Borgarnesi

Næsta föstudag og laugardag mun Söngleikjadeild Tónlistarskóla Borgarfjarðar sýna Dýrin í Hálsaskógi eftir Torbjörn Egner, í sal Grunnskólans í Borgarnesi. Fram kemur á vef Borgarbyggðar að Söngleikjadeild tónlistarskólans sé skipuð 25 börnum á aldrinum 7-14 ára og hafa þau verið að æfa þetta skemmtilega leikrit á vorönninni. Theodóra Þorsteinsdóttir er umsjónarmaður og tónlistarstjóri og hefur…Lesa meira

true

Handverksostar skapa sérstöðu

Heimsókn í MS í Búðardal: Mjólkursamlagið í Búðardal hefur í tæp 60 ár verið burðarás í atvinnulífinu þar í bæ. Það hefur frá upphafi verið rekið undir merkjum Mjólkursamsölunnar (MS) og er eitt af fimm samlögum sem MS starfrækir á landinu. Samlagið í Búðardal hefur þá sérstöðu meðal samlaga MS að það er sérhæft fyrir…Lesa meira

true

Tveir aðstoðarskólastjórar í Grundaskóla

Kristrún Dögg Marteinsdóttir og Margrét Ákadóttir hafa verið ráðnar í störf aðstoðarskólastjóra í Grundaskóla á Akranesi frá og með 1. ágúst 2023. Alls bárust átta umsóknir um starfið. Fram kemur á heimasíðu Grundaskóla að samhliða afgreiðslu á þessari ráðningu hafi verið ákveðið að ráðast í skipulagsbreytingar á stjórnskipulagi skólans og hafa tvo aðstoðarskólastjóra líkt og…Lesa meira

true

Hefja varmaskipti í grunnskóla- og íþróttamannvirkjum

Um miðjan maí mun fyrirtækið Borlausnir ehf. hefja borun á varmadæluholum í Grundarfjarðarbæ. Grunnskóli, tónlistarskóli, sundlaug og íþróttahús bæjarins eru kynt með olíu og hefur nú um tíma verið unnið að undirbúningi þess að skipta út olíukatli og setja upp varmadælubúnað sem nota á sem nýjan orkugjafa mannvirkjanna. Fyrr á árinu var leitað tilboða í…Lesa meira

true

Á sjötta hundrað fengið útgefin strandveiðileyfi

Í gær, á upphafsdegi strandveiða, hafði Fiskistofa afgreitt 517 leyfi til veiðanna, en 18 leyfi til viðbótar voru óútgefin og þörfnuðust viðbótargagna með umsókn. Umsóknir um strandveiðileyfi fyrir vertíðina í sumar eru nú í fyrsta skipti afgreidd í gegnum stafrænt umsóknakerfi Ísland.is. Með þessu er þjónusta Fiskistofu bætt til muna þar sem kerfið þykir notendavænt…Lesa meira

true

Deildin verður mjög jöfn og spennandi

Skagamenn léku í fyrra fjórða árið í röð í efstu deild karla í knattspyrnu sem nefndist Besta deildin. ÍA lauk leik í næst neðsta sæti deildarinnar og féll í Lengjudeildina ásamt Leikni Reykjavík. Jón Þór Hauksson er þjálfari Skagamanna eins og í fyrra og blaðamaður kom við hjá honum á skrifstofunni í síðustu viku til…Lesa meira

true

Guðjón Ingi sigurvegari í Bakgarðshlaupinu

Skagamaðurinn Guðjón Ingi Sigurðsson var sigurvegari í hlaupakeppninni Bakgarður 101 sem fram fór í Öskjuhlíð í Reykjavík um helgina. Bakgarður 101 er systurkeppni Bakgarðs Náttúruhlaupa sem fer fram í Heiðmörk í september ár hvert. 150 manns hófu keppni í hlaupinu þar til einn stóð eftir. Guðjón hljóp alls 207,7 km en hann hljóp 31 hring,…Lesa meira