Sundlaugin í Grundarfirði. Ljósm. Úr safni.

Hefja varmaskipti í grunnskóla- og íþróttamannvirkjum

Um miðjan maí mun fyrirtækið Borlausnir ehf. hefja borun á varmadæluholum í Grundarfjarðarbæ. Grunnskóli, tónlistarskóli, sundlaug og íþróttahús bæjarins eru kynt með olíu og hefur nú um tíma verið unnið að undirbúningi þess að skipta út olíukatli og setja upp varmadælubúnað sem nota á sem nýjan orkugjafa mannvirkjanna. Fyrr á árinu var leitað tilboða í borun á varmadæluholum fyrir mannvirkin og var fyrirtækið Borlausnir ehf. með lægsta tilboðið. Varmadæluholurnar verða sunnan við íþróttahúsið, austan við ærslabelginn sem þar stendur.

Hefja varmaskipti í grunnskóla- og íþróttamannvirkjum - Skessuhorn