
Síðdegis á föstudaginn var boðað til óformlegs samstöðufundar á fiskmarkaðinum við Akraneshöfn með þeim sjómönnum sem hyggjast stunda strandveiðar frá Akranesi í sumar. „Á fundinn var boðið smábátasjómönnum en einnig fulltrúum Fiskistofu, Faxaflóahafna, MAST, Heilbrigðiseftirlits Vesturlands og Hafró. Athygli vakti að fulltrúar allra þessara stofnana sáu sér ekki fært að koma,“ sagði Böðvar Ingvason sem…Lesa meira








