
Aðgerðir til að sporna við skaða af völdum ópíóíða
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag tillögu Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra um að veita 170 milljónum króna í aðgerðir til að sporna við skaða af völdum ópíóíðafíknar. Þróuð verður flýtimóttaka til að sinna meðferð einstaklinga í bráðum vanda og stuðlað að greiðara aðgengi að gagnreyndri lyfjameðferð. Úrræði frjálsra félagasamtaka verða efld og aðgengi að neyðarlyfinu Naloxon vegna ópíóíðaofskömmtunar bætt.