Stofna byggingarsamvinnufélag leigjenda

Samtök leigjenda hafa ákveðið að stofna Pálmholt – Byggingarsamvinnufélag leigjenda, með það að markmiði að byggja leiguhúsnæði undir forsjá og stjórn leigjenda sjálfra. „Með þessu vilja Samtök leigjenda bregðast við fátæktarstefnu stjórnvalda og gefa leigjendum kosta á að búa við öryggi og jafnræði á húsnæðismarkaði. Stjórnvöld hafa ekki sýnt neina viðleitni til að uppfylla þær lagalegu skyldur sínar og með því stimplað sig út sem ábyrgðaraðili í húsnæðismálum landsmanna,“ segir í tilkynningu um stofnfundinn.

Stofna byggingarsamvinnufélag leigjenda - Skessuhorn