Fréttir

true

Fyrsti rafmagnsflutningabíllinn til Grundarfjarðar

Flutningafyrirtækið Ragnar og Ásgeir ehf fengu nýjan og glæsilegan Volvo flutningabíl afhentan á föstudaginn frá Brimborg. Það sem er öðruvísi við þennan bíl er að þetta er fyrsta skrefið í orkuskiptum fyrirtækisins. Bíllinn er rafknúinn að öllu leyti. Ásgeir Ragnarsson eigandi og framkvæmdastjóri segir að þetta sé í fyrsta skipti sem ekki einum dropa af…Lesa meira

true

Stofna byggingarsamvinnufélag leigjenda

Samtök leigjenda hafa ákveðið að stofna Pálmholt – Byggingarsamvinnufélag leigjenda, með það að markmiði að byggja leiguhúsnæði undir forsjá og stjórn leigjenda sjálfra. „Með þessu vilja Samtök leigjenda bregðast við fátæktarstefnu stjórnvalda og gefa leigjendum kosta á að búa við öryggi og jafnræði á húsnæðismarkaði. Stjórnvöld hafa ekki sýnt neina viðleitni til að uppfylla þær…Lesa meira

true

Frumsýndu nýja heimildamynd

Heimildamyndin Út fyrir rammann var frumsýnd í Bíóhöllinni á Akranesi síðastliðið fimmtudagskvöld. Myndin er afrakstur vinnu nemenda Grundaskóla að undanförnu og er tuttugu ára sögu söngleikja í skólanum gerð skil í myndinni. Leiðbeinandi og stjórnandi við gerð myndarinnar var Margrét Saga Clothier, sem hér tekur við blómum að sýningu lokinni frá Flosa Einarssyni.Lesa meira

true

Úr safni: ,,Að vera bæjarstjóri er ekki starf heldur lífsstíll”

Á laugardögum birtast gömul viðtöl úr smiðju Skessuhorns sem ekki hafa áður birst á vefnum í heild. Viðtal þetta birtist í jólablaði Skessuhorns sem kom út 18. desember 2018. Hér var rætt við Kristinn Jónasson, bæjarstjóra Snæfellsbæjar. Kristinn Jónasson tók við starfi bæjarstjóra Snæfellsbæjar árið 1998, þá 32 ára gamall. Nú tuttugu árum síðar gegnir hann…Lesa meira

true

Úr safni: Julio Gutierrez fór ríðandi í barnaskólann

Á laugardögum birtast gömul viðtöl úr smiðju Skessuhorns sem ekki hafa áður birst á vefnum í heild. Viðtal þetta birtist í jólablaði Skessuhorns sem kom út 15. desember 2021. Hér var rætt við Julio Gutierrez, fremsta rúningsmann Íslands. Julio Cesar Gutierrez er fæddur í Uruguay en fluttist til Íslands árið 1994 og hefur því búið hér…Lesa meira

true

Aðgerðir til að sporna við skaða af völdum ópíóíða

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag tillögu Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra um að veita 170 milljónum króna í aðgerðir til að sporna við skaða af völdum ópíóíðafíknar. Þróuð verður flýtimóttaka til að sinna meðferð einstaklinga í bráðum vanda og stuðlað að greiðara aðgengi að gagnreyndri lyfjameðferð. Úrræði frjálsra félagasamtaka verða efld og aðgengi að…Lesa meira

true

12,4% landsmanna af erlendu bergi

Alls voru 67.719 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. apríl sl. og fjölgaði þeim um 3.134 frá 1. desember 2022, eða um 4,9%. Í samantekt Þjóðskrár kemur fram að nú eru 12,4% landsmanna fólk af erlendu bergi brotið. Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 30,4% frá 1. desember sl. og voru í…Lesa meira

true

Reiðhöll á Æðarodda vígð á afmæli Dreyra

Ný reiðhöll verður vígð mánudaginn 1. maí á Æðarodda við Akranes á 76 ára afmæli Hestamannafélagsins Dreyra. Nýja reiðhöllin mun gjörbreyta aðstöðu hestamanna til þjálfunar og keppnishalds. Sjálft húsið er límtréshús, 1.250 fermetrar að grunnfleti; 25 metra breitt og 50 metra langt og stendur næst aðkomuleiðinni inn á Æðarodda. Það er Fasteignafélag Akraneskaupstaðar sem er…Lesa meira

true

Breytt nálgun við útrýmingu riðu

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur fallist á tillögu yfirdýralæknis um breytta aðferðafræði við útrýmingu riðuveiki í sauðfé. Tillagan hefur verið kynnt í ríkisstjórn, en hún felst í því að markvisst verði unnið að hraðari ræktun riðuþolins sauðfjárstofns á ræktunarsvæðum sem eru skilgreind sem áhættusvæði. Samkvæmt greinargerð Landbúnaðarháskóla Íslands, sem unnin var að beiðni yfirdýralæknis, er unnt að…Lesa meira

true

Finnbjörn A Hermannsson kjörinn forseti ASÍ

Finnbjörn A. Hermannsson var í dag kjörinn forseti ASÍ á 45. þingi Alþýðusambands Íslands. Finnbjörn var sjálfkjörinn í embættið og engin mótframboð bárust. Finnbjörn hefur áratuga reynslu af störfum í verkalýðshreyfingunni. Hann lét nýlega af störfum sem formaður Byggiðnar, áður Trésmíðafélags Reykjavíkur, þar sem hann hafði verið í forsvari í 26 ár. Þá voru kjörnir…Lesa meira