Fréttir

true

Atriði í þýska kvikmynd tekin upp á Akranesi í dag

Vegfarendur á Akranesi hafa tekið eftir hvítlituðum bílaflota sem lagt er á stæðið við upplýsingaskiltin norðan við Hausthúsatorg. Þar voru bækistöðvar settar upp í morgun vegna kvikmyndaverkefnis sem nú er í gangi við Elínarhöfða. Það er fyrirtækið Polarama sem heldur utan um verkefnið. Aðspurðir segja forsvarsmenn fyrirtækisins að um sé að ræða tökur á þýskri…Lesa meira

true

Niðurstaða íbúakosninga um Okkar Akranes komin í ljós

Íbúakosningu á Okkar Akranes um „Opin og græn svæði“ lauk 11. apríl síðastliðinn. Fram kemur í tilkynningu frá Akraneskaupstað að kosið hafi verið um 20 hugmyndir og var þátttakan mjög góð. Alls kusu 708 íbúar og gat hver og einn greitt fimm atkvæði. Samanlagður atkvæðafjöldi var 3.299 atkvæði. Þær hugmyndir sem hlutu flest atkvæði eru…Lesa meira

true

Skagakonur úr leik í Mjólkurbikarnum

ÍA tók á móti Gróttu í fyrstu umferð Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn í Akraneshöllinni. Vel var mætt og góð stemning í höllinni. Ein deild er á milli liðanna á Íslandsmótinu en Grótta leikur í Lengjudeildinni á þessu tímabili á meðan ÍA spilar í þeirri annarri. Munurinn kom fljótlega í ljós…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður gerður upp með 101 milljónar króna halla

Ársreikningur Akraneskaupstaðar fyrir árið 2022 var lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn síðastliðinn þriðjudag og samþykktur samhljóða. „Ársreikningur Akraneskaupstaðar fyrir árið 2022 endurspeglar traustan rekstur þrátt fyrir erfið skilyrði í rekstarumhverfinu. Árið var jafnframt met ár í uppbyggingu innviða og viðhalds fasteigna í sveitarfélaginu. Skuldaviðmið er 39% sem er langt undir lögbundnu hámarki sem…Lesa meira

true

Mikil ánægja með Jörvagleðina í ár

Lista- og menningarhátíðin Jörvagleði í Dalabyggð var haldin dagana 19.-23. apríl og gekk vonum framar. Dagskráin var fjölbreytt og viðburðir vel sóttir. Á engan er hallað þótt sérstaklega sé nefnd leiksýningin Vodkakúrinn sem frumsýnd var á föstudagskvöldið fyrir fullu húsi í félagsheimilinu Dalabúð. Inga Heiða Halldórsdóttir fór þar með hlutverk Eyju sem prófað hefur kúrana…Lesa meira

true

Kynna skýrslu um vindorkurver

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, býður til opinna funda á nokkrum stöðum á landinu um orkuskipti með áherslu á hlutverk vindorku. Einn slíkur fundur er fyrirhugaður á Vesturlandi og verður í Dalabúð í Búðardal mánudaginn 8. maí klukkan 20. Eins og fram hefur komið í Skessuhorni skilaði starfshópur ráðherra nýverið af sér skýrslu…Lesa meira

true

Netverslun eykst – mest aukning í matvöru

Landsmenn halda áfram að auka viðskipti sín á netinu. Rannsóknasetur verslunarinnar tekur saman gögn þar að lútandi. Í mars síðastliðnum var mest aukning á milli ára í erlendri netverslun með matvöru (74,7%) og vörur frá lyfja-, heilsu- og snyrtivöruverslunum (70%). Í flokki áfengisverslunar var 11,8% aukning á milli ára og erlend netverslun með fatnað í…Lesa meira

true

Framkvæmdir á fullu við nýja síkisbrú

Búið er að fjarlægja báðar brýrnar yfir Ferjukotssíkin í Borgarfirði en önnur þeirra varð fyrir tjóni þegar miklar leysingar urðu í febrúar á þessu ári. Vegagerðin vinnur nú að framkvæmdum við Ferjukotssíkin þar sem brýrnar stóðu en nýrri brú verður komið fyrir á næstu vikum. Nýja brúin er komin á verkstað og eru áætluð verklok…Lesa meira

true

Frumsýndu nýja heimildamynd

Heimildamyndin Út fyrir rammann var frumsýnd í Bíóhöllinni á Akranesi í gærkvöldi. Myndin er afrakstur vinnu nemenda Grundaskóla að undanförnu og er tuttugu ára sögu söngleikja í skólanum gerð skil í myndinni. Leiðbeinandi og stjórnandi við gerð myndarinnar var Margrét Saga Clothier, sem hér tekur við blómum að sýningu lokinni frá Flosa Einarssyni.Lesa meira

true

Afladagbókin er nýtt smáforrit fyrir íslenska sjómenn

Afladagbókin er nýtt smáforrit sem íslenskir sjómenn geta nú nálgast á heimasíðunni https://afladagbok.com. Það er fyrirtækið Fisheries Technologies ehf. sem hannar það og selur. „Hér er á breiðum grunni hægt að vera með víðtækt utanumhald um veiðiferðir og aflabrögð. Afladagbókin er hönnuð með þarfir íslenskra smábátasjómanna í huga og fylgir þjónustan þeim úr höfn og…Lesa meira