Afladagbókin er nýtt smáforrit fyrir íslenska sjómenn

Afladagbókin er nýtt smáforrit sem íslenskir sjómenn geta nú nálgast á heimasíðunni https://afladagbok.com. Það er fyrirtækið Fisheries Technologies ehf. sem hannar það og selur. „Hér er á breiðum grunni hægt að vera með víðtækt utanumhald um veiðiferðir og aflabrögð. Afladagbókin er hönnuð með þarfir íslenskra smábátasjómanna í huga og fylgir þjónustan þeim úr höfn og heim aftur,“ segir í tilkynningu. Forritið er boðið til sölu á kynningarverði til 1. júní nk. fyrir 100 dollara, sem jafngildir á gengi dagsins 13.625 krónum.

Afladagbókin er nýtt smáforrit fyrir íslenska sjómenn - Skessuhorn