
Akraneskaupstaður gerður upp með 101 milljónar króna halla
Ársreikningur Akraneskaupstaðar fyrir árið 2022 var lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn síðastliðinn þriðjudag og samþykktur samhljóða. „Ársreikningur Akraneskaupstaðar fyrir árið 2022 endurspeglar traustan rekstur þrátt fyrir erfið skilyrði í rekstarumhverfinu. Árið var jafnframt met ár í uppbyggingu innviða og viðhalds fasteigna í sveitarfélaginu. Skuldaviðmið er 39% sem er langt undir lögbundnu hámarki sem er 150% samkvæmt sveitarstjórnarlögum,“ segir í tilkynningu.