Margt var um manninn inni að Laugum um liðna helgi. Ljósm. Lífið á Laugum

Mikil ánægja með Jörvagleðina í ár

Lista- og menningarhátíðin Jörvagleði í Dalabyggð var haldin dagana 19.-23. apríl og gekk vonum framar. Dagskráin var fjölbreytt og viðburðir vel sóttir. Á engan er hallað þótt sérstaklega sé nefnd leiksýningin Vodkakúrinn sem frumsýnd var á föstudagskvöldið fyrir fullu húsi í félagsheimilinu Dalabúð. Inga Heiða Halldórsdóttir fór þar með hlutverk Eyju sem prófað hefur kúrana marga til þess að grenna sig og fækka sentímetrunum um sig miðja. Engu virðast þeir kúrar hafa skilað og heldur leitin áfram að einfaldri leið til að minnka kílóafjöldann. Verkið er kómísk og sterk ádeila á útlitsdýrkun og sjálfsmynd. Það snýr að öllu leyti að því að Eyja sé of feit og benda aðrar persónur iðulega á að holdafar hennar sé heldur mikið og gefa henni ráð um hvernig eigi að bæta það. Svo fer að bróðir Eyju fær hana til að prófa Vodkakúr, þar sem einungis vodki er innbyrtur. Leikstjóri í sýningunni er Ólöf Halla Bjarnadóttir en verkið Vodkakúrinn er eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur.

Mikil ánægja með Jörvagleðina í ár - Skessuhorn