
Í kvöld klukkan 20 hefur verið boðað til funda í flokksfélögum Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks á Akranesi. Þessi flokkar ákváðu síðastliðinn föstudag að hefja formlegar viðræður um myndun meirihluta í bæjarstjórn. Að sögn Lífar Lárusdóttur oddvita Sjálfstæðisflokks hafa viðræður gengið vel síðustu daga. Í kvöld stendur til að bæjarfulltrúar leggi drög að meirihlutasamstarfi flokkanna undir flokksfélögin…Lesa meira








