Fréttir

true

Barnamenningarhátíðin 2022 verður á Snæfellsnesi

Nýverið var undirritað samkomulag á milli Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og Snæfellsbæjar um Barnamenningarhátíðina 2022, en það verkefni er eitt áhersluverkefna Sóknaráætlunar Vesturlands til stuðnings blómlegri menningu í landshlutanum. Barnamenningarhátíðir hafa nú verið haldnar reglubundið á ýmsum stöðum í rúmlega tíu ár s.s. í Reykjavík. Á Vesturlandi hefur hátíðin farið á milli staða og…Lesa meira

true

Minnisvarði afhjúpaður í Tjaldanesi um Magnús Jónsson

Síðastliðinn laugardag var afhjúpaður minnisvarði um Magnús Jónsson bónda og fræðimann í Tjaldanesi, en 17. maí voru liðin eitt hundrað ár frá andláti hans. Dagurinn var bjartur og rúmlega 50 manns komin saman til að minnast Magnúsar, en hann á nú 599 afkomendur á lífi og stóðu þeir að því að reisa minnisvarðann. Helstu hvatamenn…Lesa meira

true

Íslensku safnaverðlaunin veitt í dag

Alþjóðlegi safnadagurinn er í dag. Hann er haldinn ár hvert þann 18. maí af alþjóðlegum samtökum safnmanna (International Council of Museums, ICOM) en söfn um allan heim skipuleggja dagskrá af þessu tilefni. Íslensku safnaverðlaunin verða jafnframt veitt í dag kl. 16 við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík. Fimm söfn eru að þessu…Lesa meira

true

„Það besta sem maður getur hugsað sér að vera amma“

Pálína Jörgensdóttir er húsfreyja á Hofsstöðum í Stafholtstungum í Borgarfirði en hún hefur getið sér gott orðspor á sviði afkasta og myndarskaps í prjónamennsku. Þar býr hún ásamt eiginmanni sínum, Tómasi Inga Tómassyni, og eiga þau saman þrjú börn og fjögur barnabörn. Pálína hóf ævina í Reykjavík en leiðir hennar lágu svo í Borgarfjörðinn þar…Lesa meira

true

Vortónleikar Kórs Akraneskirkju í Vinaminni

Vortónleikar Kórs Akraneskirkju verða í Vinaminni, safnaðarheimili Akraneskirkju fimmtudaginn 19. maí kl. 20. Þar verður m.a. flutt sú stóra gleðibomba Fuglakabarett þeirra Daníels Þorsteinssonar og Hjörleifs Hjartarsonar á svokölluðu Kaffihúsakvöldi kórsins. Tríó Daníels Þorsteinssonar leikur með en það skipa Guðjón Þorláksson á kontrabassa, Einar Scheving á trommur og Daníel Þorsteinsson á píanó. Þá stígur ungur…Lesa meira

true

Reynir Hellissandi tapaði fyrir Ísbirninum

Ísbjörninn og Reynir Hellissandi áttust við í fyrstu umferð í A riðli 4. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Kórnum í Kópavogi. David Ibarra kom heimamönnum yfir eftir korters leik en þremur mínútum síðar jafnaði Björn Óli Snorrason metin fyrir gestina. Á átta mínútna kafla undir lok fyrri hálfleiks skoraði…Lesa meira

true

Ljósleiðaravæðing heldur áfram í Snæfellsbæ

Míla er nú að fara af stað með framkvæmdir við lagningu ljósleiðara í stærstu þéttbýliskjörnunum í Snæfellsbæ. Á heimasíðu Snæfellsbæjar er greint frá því að á þessu ári sé ætlunin að tengja 52 heimili í Ólafsvík og 15 heimili á Hellissandi við ljósleiðara Mílu, auk hafnarsvæðisins á Rifi. Nú þegar eru 113 heimili í þéttbýli…Lesa meira

true

Perlað verður af krafti næstu daga fyrir Kraft

Í dag hófst fjáröflunar- og árvekniátak Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Markmið átaksins er að selja ný „Lífið er núna“ armbönd, fá fólk til að koma saman og sýna samstöðu með því að perla armbönd og sýna almenningi inn í reynsluheim félagsmanna Krafts og þeim áskorunum sem verða…Lesa meira

true

2500 ungmenni án verkefna á síðasta ári

Árið 2021 er áætlað að 6,3% ungs fólks á aldrinum 16-24 ára hafi ekki verið í vinnu, námi eða starfsþjálfun. Þetta hlutfall jafngildir því að þetta hafi átt við ríflega 2.500 ungmenni það árið. Á síðustu tíu árum var hlutfallið lægst 4,9% árið 2017 en hæst 7,4% árið 2020. Þetta kemur fram í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Nýjar leiðir í skólastarfi

Menntaskóli Borgarfjarðar í Borgarnesi hóf göngu sína haustið 2007 og var þá nokkurs konar tilraunaskóli. Námsbrautir voru til þriggja ára sem þá var nýnæmi, kennslan var tæknivædd og allir nemendur fengu fartölvur, svo nokkuð sé nefnt. Fimmtán árum síðar er skólinn ennþá farvegur nýrra leiða í skólastarfi og þar verður nú ráðist í grundvallarbreytingar. Blaðamaður…Lesa meira