Byggðasafnið í Görðum á Akranesi. Ljósm. vaks

Íslensku safnaverðlaunin veitt í dag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Alþjóðlegi safnadagurinn er í dag. Hann er haldinn ár hvert þann 18. maí af alþjóðlegum samtökum safnmanna (International Council of Museums, ICOM) en söfn um allan heim skipuleggja dagskrá af þessu tilefni.\r\n\r\nÍslensku safnaverðlaunin verða jafnframt veitt í dag kl. 16 við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík. Fimm söfn eru að þessu sinni tilnefnd til verðlaunanna og er eitt þeirra Byggðasafnið í Görðum á Akranesi. Verðlaunin eru veitt einu safni sem þykir hafa skarað fram úr og er það nýja grunnsýning Byggðasafnsins í Görðum sem er tilnefnd að þessu sinni.\r\n\r\nTekið er fram að viðurkenningin sem felst í verðlaununum sé bæði heiður og hvatning söfnunum fimm sem hljóta tilnefningu ekki síður en því safni sem hlýtur verðlaunin.\r\n\r\nNý grunnsýning Byggðasafnsins í Görðum var opnuð í maí 2021. Þar er varpað ljósi á mannlíf á Akranesi og í Hvalfirði er varðar fjóra þætti: Lífið til sjós, lífið í landi, lífið í vinnu og lífið í leik. Saga einstaklinga er tvinnuð saman við sýningarefnið.\r\n\r\nUndirbúningur að sýningunni hófst fyrir um fimm árum. Í mati valnefndar er sérstaklega rætt um framúrskarandi hönnun hennar þar sem fjölmargar skemmtilegar lausnir beri hugmyndaauðgi hönnuða og aðstandenda vott. Svo sagði enn fremur í áliti valnefndar: „ <em>... að ný grunnsýning Byggðasafnsins í Görðum sé framúrskarandi verkefni, þar sem faglegt safnastarf og vönduð úrvinnsla fara saman. Þar er hugað að því að ólíkir gestir finni eitthvað við sitt hæfi og að hver og einn geti notið sýningarinnar á sínum hraða og forsendum. ...snjallar lausnir hafa gert safninu kleift að skapa sýningu sem stenst fyllilega kröfur samtímans um fjölbreytta miðlun og aðgengileika.</em>“\r\n\r\n<em> </em>\r\n\r\n&nbsp;",
  "innerBlocks": []
}
Íslensku safnaverðlaunin veitt í dag - Skessuhorn