Reynir Hellissandi tapaði fyrir Ísbirninum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ísbjörninn og Reynir Hellissandi áttust við í fyrstu umferð í A riðli 4. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Kórnum í Kópavogi. David Ibarra kom heimamönnum yfir eftir korters leik en þremur mínútum síðar jafnaði Björn Óli Snorrason metin fyrir gestina. Á átta mínútna kafla undir lok fyrri hálfleiks skoraði Ísbjörninn þrjú mörk og gerði nánast út um leikinn. Fyrst var það Rúben Narciso sem skoraði og síðan bætti Mateusz Lis við tveimur mörkum, staðan 4-1 og útlitið ekki gott fyrir Reynismenn.\r\n\r\nÍ seinni hálfleik var rólegra yfir markaskorun en meira fjör í spjaldasöfnun liðanna því alls fóru sex gul spjöld á loft hjá Hallgrími Viðari Arnarsyni dómara leiksins og þar af fengu Reynismenn fjögur þeirra. Það var síðan undir lok leiksins sem aftur lifnaði yfir leiknum og þrjú mörk litu dagsins ljós. Fyrst skoraði Sigurjón Daði Valdimarsson fimmta mark Ísbjarnarins og síðan náðu Reynismenn að minnka muninn aðeins í uppbótatíma með mörkum frá þeim Kristófer Mána Atlasyni og Úlfari Inga Þrastarsyni, lokastaðan sanngjarn sigur Ísbjarnarins, 5-3.\r\n\r\nNæsti leikur Reynis er Vesturlandsslagur gegn Skallagrími næsta þriðjudag á Ólafsvíkurvelli og hefst klukkan 20.",
  "innerBlocks": []
}
Reynir Hellissandi tapaði fyrir Ísbirninum - Skessuhorn