Vortónleikar Kórs Akraneskirkju í Vinaminni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Vortónleikar Kórs Akraneskirkju verða í Vinaminni, safnaðarheimili Akraneskirkju fimmtudaginn 19. maí kl. 20. Þar verður m.a. flutt sú stóra gleðibomba Fuglakabarett þeirra Daníels Þorsteinssonar og Hjörleifs Hjartarsonar á svokölluðu Kaffihúsakvöldi kórsins. Tríó Daníels Þorsteinssonar leikur með en það skipa Guðjón Þorláksson á kontrabassa, Einar Scheving á trommur og Daníel Þorsteinsson á píanó. Þá stígur ungur Skagamaður og rappari, Dagur Karl á stokk og tekur að sér hlutverk sílamávsins í Fuglakabarettinum en Fuglakabarettinn er samsettur af hnyttnum og skemmtilegum vísum Svarfdælingsins og Hundsins í óskilum, Hjörleifs Hjartarsonar um farfuglana okkar sem koma hver af öðrum til landsins. Þar má finna m.a., í snilldar búningi Daníels Þorsteinssonar tónskálds og píanóleikara, enskan vals lóunnar, harðan blús krummans, gargandi gleðisöng kríunnar og rapp sílamávsins svo eitthvað sé nefnt. Þá verða í boði kökur og kræsingar að hætti kórfélaga sem lofa skemmtilegri vor- og sumarskemmtun. Stjórnandi kórsins er Hilmar Örn Agnarsson.\r\n\r\n \r\n\r\nMiðasala er við innganginn, hjá kórfélögum og í versluninni Bjargi á Akranesi og aðgangseyrir er kr. 4000.",
  "innerBlocks": []
}
Vortónleikar Kórs Akraneskirkju í Vinaminni - Skessuhorn