Sigursteinn Sigurðsson menningarfulltrúi SSV og Heimir Berg Vilhjálmsson undirrita samstarfssamninginn. Ljósm. Helga Guðjónsdóttir

Barnamenningarhátíðin 2022 verður á Snæfellsnesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nýverið var undirritað samkomulag á milli Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og Snæfellsbæjar um Barnamenningarhátíðina 2022, en það verkefni er eitt áhersluverkefna Sóknaráætlunar Vesturlands til stuðnings blómlegri menningu í landshlutanum.\r\n\r\nBarnamenningarhátíðir hafa nú verið haldnar reglubundið á ýmsum stöðum í rúmlega tíu ár s.s. í Reykjavík. Á Vesturlandi hefur hátíðin farið á milli staða og síðast stóð til að halda hana á Akranesi árið 2020 en frestaðist um eitt ár og var haldin árið 2021 með öllum þeim takmörkunum sem því fylgdi.\r\n\r\nNú þegar hefur Snæfellsbær hafið vinnu við skipulagningu hátíðarinnar og er það Heimir Berg Vilhjálmsson markaðs- og upplýsingafulltrúi sveitarfélagsins sem annast undirbúninginn.",
  "innerBlocks": []
}
Barnamenningarhátíðin 2022 verður á Snæfellsnesi - Skessuhorn