Rif og Hellissandur. Ljósm. af.

Ljósleiðaravæðing heldur áfram í Snæfellsbæ

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Míla er nú að fara af stað með framkvæmdir við lagningu ljósleiðara í stærstu þéttbýliskjörnunum í Snæfellsbæ. Á heimasíðu Snæfellsbæjar er greint frá því að á þessu ári sé ætlunin að tengja 52 heimili í Ólafsvík og 15 heimili á Hellissandi við ljósleiðara Mílu, auk hafnarsvæðisins á Rifi. Nú þegar eru 113 heimili í þéttbýli í Snæfellsbæ með tengingu við ljósleiðara Mílu, 64 í Ólafsvík og 49 á Hellissandi og Rifi.\r\n\r\n„Í Ólafsvík verða heimili við Miðbrekku og Fossabrekku 21 tengd ljósleiðara Mílu. Þá er ætlunin að tengja fimm heimili við Skálholt, heimili við Brautarholt 1 – 16 og Grundarbraut 42 – 50 á þessu ári. Á Hellissandi verða heimili við Snæfellsás og Hellisbraut 10, 19 og 21 tengd ljósleiðara á árinu, auk hafnarsvæðisins á Rifi,“ segir í frétt Snæfellsbæjar.\r\n\r\nMeð tengingu við ljósleiðara Mílu fá heimilin möguleika á að nýta sér allt að 1 Gb/s háhraðatengingu sem ljósleiðarinn veitir og er það öflugasta heimilistengingin sem er í boði hjá Mílu.",
  "innerBlocks": []
}
Ljósleiðaravæðing heldur áfram í Snæfellsbæ - Skessuhorn