
Leiklistaklúbburinn Melló í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi frumsýnir söngleikinn Útfjör eða Fun Home á morgun, fimmtudaginn 24. mars. Söngleikurinn er byggður á teiknimyndasögu Alison Bechdel um ævi hennar og var fyrsti söngleikurinn sem sýndur var á Broadway þar sem aðalpersónan er lesbía. Útfjör er vísun í eitt af störfum fjölskylduföðurins í verkinu sem rekur útfararstofu…Lesa meira








