Borgarverk mun leggja veg um Teigsskóg

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hjá Vegagerðinni voru í dag opnuð tilboð í vegarlagningu um Gufudalssveit, milli Þórisstaða og Hallsteinsnes, eða um hinn margumrædda og umdeilda Teigsskóg. Vegurinn verður 10,4 km að lengd um Þorskafjörð auk 200 metra vegarkafla á Djúpadalsvegi. Fjögur tilboð bárust í verkið, en kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar hljóðaði upp á 1.431 milljón króna. Borgarverk ehf. í Borgarnesi átti lægsta boð, bauð 1.235 milljónir króna sem er 86,3% af kostnaðaráætlun. Örlítið hærra boð barst frá Norðurtaki ehf. upp á 1.243 milljónir. Suðurverk hf. bauð 1.479 milljónir og hæsta boð barst frá Íslenskum aðalverktökum hf. upp á 1.755 milljónir. Verkinu á að vera lokið 15. október 2023.",
  "innerBlocks": []
}
Borgarverk mun leggja veg um Teigsskóg - Skessuhorn