
Hanna Bergrós flytur atriði sitt. Ljósm. FVA.
Hanna Bergrós vann forkeppni FVA
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðastliðinn fimmtudag stóð Nemendafélag Fjölbrautaskóla Vesturlands fyrir forkeppni vegna Söngkeppni framhaldsskólanna. Fór keppnin fram í Tónbergi og var hin glæsilegasta. Fimm söngvarar stigu á svið og fluttu sitt atriði og á meðan dómnefnd réði ráðum sínum fengu áhorfendur að sjá atriði úr söngleiknum Útfjör sem leiklistarklúbburinn frumsýnir á morgun, fimmtudag. Einnig stóð góðgerðarfélagið Eynir fyrir köku- og sælgætissölu til styrktar flóttafólki frá Úkraínu.\r\n\r\nSvo fór að Hanna Bergrós Gunnarsdóttir sigraði með flutningi sínum á laginu Killing Me Softly. Mun hún því keppa fyrir hönd FVA í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fer á Húsavík sunnudaginn 3. apríl. Keppnin verður send út í beinni útsendingu á RÚV.",
"innerBlocks": []
}