
Sverrir Elí í brautinni. Ljósm. þs
Tóku þátt í Norðurlandamótinu í grjótglímu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Norðurlandamótið í grjótglímu var haldið í Gautaborg um liðna helgi og metþátttaka var á mótinu, eða 226 klifrarar frá öllum Norðurlöndunum. Ísland sendi 20 klifrara til leiks og af þeim voru þrír frá Klifurfélagi ÍA, þau Sylvía Þórðardóttir (Youth A), og Sverrir Elí Guðnason og Þórkatla Þyrí Sturludóttir (Youth B).\r\n\r\nYouth-flokkar kepptu með svokölluðu „flass“ formi, klifruðu átta leiðir og höfðu til þess 90 mínútur eða fimm tilraunir. Undankeppni mótsins fór fram á laugardagsmorgni og hóf B-flokkur leika. Mótið var fyrnasterkt og allar átta leiðir þess í erfiðari kantinum, reyndu meira á líkamlegan styrk fremur en tæknilega kunnáttu. Sverrir Elí náði tveimur „zone“ gripum og var ekki langt frá að toppa tvær leiðir, en náði ekki endagripinu. Þórkatla Þyrí, sem er á yngra ári í B-flokk, náði einu „zone“ gripi en aðrar leiðir reyndust henni ofviða að þessu sinni. Sverrir Elí og Þórkatla Þyrí luku því keppni og geta verið stolt af sinni frammistöðu.\r\n\r\nÍ A-flokki klifraði Sylvía og átti nokkrar góðar tilraunir í leiðir mótsins. Hún náði örugglega tveimur „zone“ gripum og toppaði eina leið í þremur tilraunum, sem þó dugði ekki áfram í úrslit.\r\n\r\nÍslenski hópurinn, sem er tiltölulega ungur og óreyndur, kom tveimur klifrurum áfram í úrslit, en þau Óðinn Arnar Freysson (Junior) og Agnes Matthildur Helgadóttir Folkmann (Youth B) enduðu í tíunda sæti í sínum flokki. Mótið fer í reynslubankann hjá íslenska hópnum sem nú undirbúa sig flestir undir Íslandsmeistaramótið sem fer fram eftir í Reykjavík.",
"innerBlocks": []
}