
Hvalur var síðast skorinn í stöðinni sumarið 2018. Ljósm. mm.
Kristján stefnir á hvalveiðar í sumar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Vegfarendur sem leið hafa átt um vesturbæ Reykjavíkur hafa tekið eftir því að hið sjötíu ára gamla hvalveiðiskip Hvalur 9 hefur verið tekið upp í slipp. Þar mun skipið verða næstu þrjár vikur meðan það verður málað, gert við botnloka og tanka. Stefnt er á að Hvalur 8 fái sambærilega meðferð í kjölfarið. Í Morgunblaðinu í dag er rætt við Kristján Loftsson forstjóra Hvals. Hann kveðst þar stefna á hvalveiðum í sumar, en þær voru síðast stundaðar sumarið 2018. Reiknar Kristján með að veiðar hefjist í júní og að þær standi fram í september, líkt og verið hefur undanfarnar vertíðar. Kristján kveðst reikna með að 150 manns verði ráðnir til að sinna störfum við veiðar, hvalskurð og vinnslu afurða í Hafnarfirði. Hvalurinn verður sem fyrr skorinn í Hvalstöðinni í Hvalfirði þar sem öllum tækjum og mannvirkjum hefur verið vel við haldið alla tíð.\r\n\r\nAðspurður um söluhorfur segir Kristján í samtali við Morgunblaðið að þær séu heldur betri en undanfarin ár. Minna sé lagt upp úr hvalveiðum í Japan svo verð hafi skánað. Að því gefnu að gengi krónunnar fari ekki niður úr öllu valdi kveðst Kristján bjartsýnn á sölu afurða.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_52131\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-52131 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/03/Kristjan-stefnir-a-hvalveidar-i-sumar_2-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"400\" /> Mannvirkjum Hvalstöðvarinnar er vel við haldið eins og sjá má á þessari mynd sem tekin var fyrr í vetur.[/caption]",
"innerBlocks": []
}