Fréttir

true

Ríkisstjórnin samþykkir lokunarstyrki vegna Covid

Ríkisstjórnin samþykkti á föstudaginn að leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila. Frumvarpið felur í sér framlengingu lokunarstyrkja til þeirra sem hafa tímabundið þurft að loka starfsemi sinni vegna sóttvarnaráðstafana og orðið af verulegum tekjum vegna þess. Lagt er til að úrræðið verði í öllum meginatriðum sambærilegt…Lesa meira

true

Komu böndum á laust þak

Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ var kölluð út um eittleytið á laugardaginn að Mýrarholti 3 í Ólafsvík. Verkefnið var að binda niður þak hússins með stroffum, en þak þetta hefur verið til vandræða í langan tíma, en enginn er búsettur í húsinu. Þetta var ekki í fyrsta skiptið sem Lífsbjörg er kölluð út til sama verkefnis.…Lesa meira

true

Starfsfólk skóla og frístundastarfs eru Skagamenn ársins

Á Þorrablóti Skagamanna, sem fram fór í streymi í gærkvöldi, var tilkynnt um val á Skagamanni ársins. Að þessu sinni er það stór hópur fólks, eða starfsfólk leik-, grunn- og framhaldsskóla á Akranesi og frístundastarfs í bæjarfélaginu. Skagamenn ársins eru því starfsmenn Akrasels, Garðasels, Vallarsels, Teigasels, Brekkubæjarskóla, Grundaskóla, Fjölbrautaskóla Vesturlands og Frístundamiðstöðvarinnar Þorpsins. Það var…Lesa meira

true

Allar mögulegar afléttingar í skoðun

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, settur forstjóri Landspítalans, skrifa í dag sameiginlega grein á vísi.is. Ber hún yfirskriftina „Hvert er verkefnið – leiðin út“. Rekja þau ástæður þess að þrátt fyrir að þjóðin hafi öslað skafl í baráttunni við veiruna, sjái nú fram úr honum og byrjað sé að skoða allar mögulegar…Lesa meira

true

Spáð dimmum hryðjum fram eftir degi

Áfram mun ganga á með dimmum hryðjum í veðri vestantil á landinu. Gul viðvörun er fyrir Faxaflóasvæðið fram undir kvöld. Spáð er vestan- og suðvestan 15-20 m/s og éljagangi með snörpum vindhviðum í ofankomu. Búast má við lélegu skyggni og slæmum akstursskilyrðum og afmörkuðum samgöngutruflunum.Lesa meira

true

ÍA tapaði gegn Sindra

Skagamenn léku gegn liði Sindra í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Höfn í Hornafirði. Átján stigum munaði á liðunum í deildinni fyrir leikinn, Sindri er í baráttu um að komast upp í Subway deildina á meðan ÍA situr sem fastast á botninum með tvö stig. Sindri byrjaði betur…Lesa meira

true

Hinseginhátíðin verður í Snæfellsbæ í sumar

Hinseginhátíð Vesturlands fer fram helgina 22.- 24. júlí 2022 í Snæfellsbæ í sumar, nánar tiltekið í Ólafsvík. Aðalatriði helgarinnar, Gleðigangan, verður laugardaginn 23. júlí. Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur. Hinsegin Vesturland var haldið í fyrsta skipti í fyrrasumar og fór hátíðin þá fram í Borgarnesi. Ráðgert er að hún muni flakka á milli…Lesa meira

true

Bálhvasst og hríðarbylur – Vegagerðin mun loka vegum

Vegagerðin bendir á að framundan er hvellur í veðrinu, bálhvasst í kvöld einkum um vestan- og norðanvert landið frá því um klukkan 21 og fram yfir miðnætti. „Hríðarbylur á flestum fjallvegum. Í nótt og á morgun er reiknað með þéttum éljum vestantil og þá einnig á láglendi. Blint verður og skafrenningur á fjallvegunum.“ Þá segir…Lesa meira

true

Engin kennsla í næstu viku í Brekkubæjarskóla

Vegna loftgæða og vinnu við hreinsun eftir brunann í Brekkubæjarskóla á Akranesi verður engin kennsla í næstu viku í skólanum. Húsnæði hefur fengist fyrir miðstigs bekkina á öðrum stöðum á Akranesi til að þeir geti komið í staðbundinn skóla frá og með þriðjudegi. Á mánudaginn verður heimaskóli hjá 5. og 7. bekk og starfsstöðvarnar undirbúnar.…Lesa meira

true

Mjög vel gengur að selja í streymið á Þorrablót Skagamanna

Mikil stemning er að myndast fyrir Þorrablóti Skagamanna sem fram fer á morgun í streymi og hefur miðasalan gengið vonum framar, að sögn Guðrúnar Lindar Gísladóttur sem er í undirbúningsnefnd 79 árgangsins. „Í gær vorum við búin að selja yfir 400 miða á streymið og erum við því að ná miðasölunni frá því í fyrra.…Lesa meira