Mjög vel gengur að selja í streymið á Þorrablót Skagamanna

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Mikil stemning er að myndast fyrir Þorrablóti Skagamanna sem fram fer á morgun í streymi og hefur miðasalan gengið vonum framar, að sögn Guðrúnar Lindar Gísladóttur sem er í undirbúningsnefnd 79 árgangsins. „Í gær vorum við búin að selja yfir 400 miða á streymið og erum við því að ná miðasölunni frá því í fyrra. Flestir kaupa sér miða sama dag og blótið fer fram þannig að þetta lítur alveg frábærlega út.“\r\n\r\nGuðrún Lind segir að þau séu afar lukkuleg með alla þá fjölmörgu styrktar- og stuðningsaðila sem hafa gert þeim kleift að gera blótið eins glæsilegt og lagt var upp með að það yrði: „Fullt af fyrirtækjum hafa boðið starfsmönnum sínum á blótið í gegnum starfsmannafélögin því það er lítið um árshátíðir og þorrablót þessa dagana. Við erum mjög bjartsýn og hlökkum mikið til.“\r\n\r\nÚtsendingin á Þorrablóti Skagamanna hefst klukkan sex þar sem myndir munu rúlla frá gömlum blótum og úr partíum um gervallan Skagann. Hálf átta byrjar fyrsti hluti happdrættisins og gildir miði á streymið sem miði í þessu veglega happdrætti. Formleg dagskrá hefst síðan klukkan átta þar sem meðal annars verður valinn Skagamaður ársins, Skagaskaupið, Iddi Biddi og vinsælir tónlistarmenn stíga á svið.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-50471\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/01/THorrablot-Skagamanna-600x918.png\" alt=\"\" />",
  "innerBlocks": []
}
Mjög vel gengur að selja í streymið á Þorrablót Skagamanna - Skessuhorn