{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Vegna loftgæða og vinnu við hreinsun eftir brunann í Brekkubæjarskóla á Akranesi verður engin kennsla í næstu viku í skólanum. Húsnæði hefur fengist fyrir miðstigs bekkina á öðrum stöðum á Akranesi til að þeir geti komið í staðbundinn skóla frá og með þriðjudegi. Á mánudaginn verður heimaskóli hjá 5. og 7. bekk og starfsstöðvarnar undirbúnar.\r\n\r\nFyrsti til fjórði bekkur verður á sömu starfsstöðvum og í þessari viku og í frístund eftir skóla.\r\n\r\nFimmti bekkur verður í Tónlistarskólanum frá þriðjudegi og vegna fjöldatakmarkana mæta þau í tveimur hópum, frá klukkan 8.10 til 11 og frá klukkan 11.10 til 14.\r\n\r\nSjötti bekkur verður í Oddfellow salnum, Kirkjubraut 54, frá mánudegi, þau mæta í tveimur hópum og sami skólatími er hjá þeim eins og í fimmta bekk.\r\n\r\nSjöundi bekkur verður í Jónsbúð, Akursbraut 13, þau mæta í tveimur hópum og sami skólatími og í fimmta og sjötta bekk.\r\n\r\nÁttundi til tíundi bekkur verður alla dagana í heimaskóla samkvæmt skipulagi frá kennurum.\r\n\r\nÍþróttir, dans og sund halda sér samkvæmt stundaskrá frá fimmta bekk til þess tíunda.",
"innerBlocks": []
}
Engin kennsla í næstu viku í Brekkubæjarskóla - Skessuhorn