ÍA í sigurleiknum gegn Hrunamönnum í desember. Ljósm. vaks

ÍA tapaði gegn Sindra

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skagamenn léku gegn liði Sindra í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Höfn í Hornafirði. Átján stigum munaði á liðunum í deildinni fyrir leikinn, Sindri er í baráttu um að komast upp í Subway deildina á meðan ÍA situr sem fastast á botninum með tvö stig. Sindri byrjaði betur í leiknum, var kominn í 16:7 eftir rúmlega fimm mínútur og bætti enn við forskotið það sem eftir lifði leikhlutans, staðan 27:12. Munurinn jókst síðan enn meir í öðrum leikhluta. Á þremur mínútum náði Sindri að skora 13 stig gegn aðeins þremur stigum gestanna, staðan 40:17 og þegar flautað var til leikhlés var þetta á svipuðum nótum, 51:33 fyrir heimamenn.\r\n\r\nLítið gekk hjá Skagamönnum að saxa á forskot heimamanna í þriðja fjórðungnum, liðin skiptust á að skora og staðan 73:57 fyrir fjórða og síðasta leikhluta. Skagamenn náðu síðan að koma aðeins til baka því eftir rúman fimm mínútna leik var munurinn orðinn tíu stig og smá von kviknaði í herbúðum ÍA en nær komust þeir ekki. Sindramenn hleyptu þeim aldrei of nálægt og öruggur sigur Sindra í höfn á Höfn, 89:77.\r\n\r\nSkagamenn léku í gær eins og í undanförnum leikjum án Bandaríkjamannsins Cristopher Clover. Hann fór til heimalandsins í jólafrí í desember og fékk síðan kóvid og hefur því enn ekki fengið að koma til landsins en er væntanlegur fyrir mánaðarmótin. Nestor Saa ákvað að yfirgefa Skagamenn á síðasta ári og fór erlendis. Bretinn Lucien Christofis spilaði sinn annan leik fyrir ÍA í gærkvöldi og styrkir liðið mikið en hann hefur leikið í Svíþjóð undanfarin ár. ÍA hefur nú tapað fimm leikjum í röð í deildinni eftir að hafa unnið sinn fyrsta sigur gegn Hrunamönnum um miðjan desember.\r\n\r\nStigahæstir í liði ÍA voru þeir Lucien Christofis með 28 stig, Davíð Alexander Magnússon með 15 stig og Þórður Freyr Jónsson með 14 stig. Í liði Sindra var Patrick Simon með 20 stig, Jordan Connors með 19 stig og 20 fráköst og Tómas Orri Hjálmarsson með 17 stig.\r\n\r\nNæsti leikur Skagamanna er gegn Fjölni sunnudaginn 30. janúar á Akranesi og hefst leikurinn klukkan 19.15.\r\n\r\n ",
  "innerBlocks": []
}
ÍA tapaði gegn Sindra - Skessuhorn