Allar mögulegar afléttingar í skoðun

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, settur forstjóri Landspítalans, skrifa í dag sameiginlega grein á vísi.is. Ber hún yfirskriftina <a href=\"https://www.visir.is/g/20222212213d/hvert-er-verk-efnid-leidin-ut\">„Hvert er verkefnið – leiðin út“.</a> Rekja þau ástæður þess að þrátt fyrir að þjóðin hafi öslað skafl í baráttunni við veiruna, sjái nú fram úr honum og byrjað sé að skoða allar mögulegar afléttingar á sóttvarnaráðstöfunum. Í upphafi greinarinnar segja þau m.a.: „Heilbrigðiskerfið okkar stendur nú í ströngu við að takast á við enn eitt afbrigði Covid-19 veirunnar – ómikron. Covid-19 innlagnir og eftirköst veikinda kalla á tvöfalda umönnun auk þess sem heilbrigðisstofnanir verða að vera í stakk búnar til að sinna bráðum veikindum og slysum sem eru ótengd Covid-19. Framundan eru lokametrar þessarar bylgju og þá skiptir máli að verkefnið sé skýrt afmarkað svo að við missum ekki sjónar á því hvert við ætlum okkur. Það er frumskylda stjórnvalda að tryggja þær aðstæður að allir geti sótt sér viðunandi heilbrigðisþjónustu. Við ætlum okkur út úr þessum faraldri og öflugt heilbrigðiskerfi er því forgangsverkefnið.“\r\n\r\nÍ greininni rifja höfundar upp að 28. desember síðastliðinn hafi Landspítali verið settur á neyðarstig þegar ljóst var að fjölgun Covid-19 tilfella í samfélaginu myndi hafa veruleg áhrif á starfsemi spítalans. „Ómikron afbrigði veirunnar er töluvert meira smitandi en önnur afbrigði hafa verið. Það þýðir að starfsfólk á heilbrigðisstofnunum hefur í meira mæli smitast eða lent í sóttkví, með tilheyrandi röskun á getu stofnananna að tryggja fullnægjandi mönnun. Þegar þetta er skrifað eru til að mynda 187 starfsmenn Landspítala í einangrun vegna veirunnar.“ Þá segja höfundar að við þessu hafi þurft að bregðast hratt og hafa bæði sjálfstætt starfandi aðilar, heilbrigðisstofnanir um allt land og einstaklingar í bakvarðarsveitum sýnt snör viðbrögð til að tryggja mönnun á Landspítala. „Saman hefur okkur því tekist að brúa bilið vegna áskorunar um mönnun og Landspítali stendur sterkari.“\r\n\r\n<strong>Afléttingar í skrefum</strong>\r\n\r\nSíðar í greininni segja þau Willum Þór og Guðlaug Rakel: „Það er ljóst að bjartari tímar eru í kortunum og við þurfum að stíga varfærin skref í átt að afléttingum. Þrátt fyrir að einkenni ómikron séu vægari og minna sé um sjúkrahúsinnlagnir þá er fólk enn að veikjast. Eiginleikar ómikron veirunnar valda því að mikið er um smit á meðal barna og ungmenna, með tilheyrandi áhrifum á fjölskyldur og samfélagið í heild. Brýnt er því að skoða hvernig megi létta á sóttvarnarráðstöfunum til að halda samfélaginu sem mest gangandi. Í samráði við sóttvarnalækni eru nú allar mögulegar afléttingar í skoðun með hliðsjón af skynsemi og öryggi. Næstu skref eru að aflétta neyðarstigi spítalans. Áður en það er gert verðum við að vera fullviss um að slíkt sé óhætt. Það verður gert að vel ígrunduðu máli, með hliðsjón af nýjustu spálíkönum og með hliðsjón af gögnum frá okkar færustu sérfræðingum…“ „Fram undan eru því afléttingar en við þurfum áfram að vera varkár og feta leiðina út með stuttum en öruggum skrefum.\r\n\r\n<a href=\"https://www.visir.is/g/20222212213d/hvert-er-verk-efnid-leidin-ut\"><em>Sjá greinina á Vísi.is í heild sinni hér.</em></a>",
  "innerBlocks": []
}
Allar mögulegar afléttingar í skoðun - Skessuhorn