
Listamennirnir Bjarni Sigurbjörnsson og eiginkona hans Ragnheiður Guðmundsdóttir hafa keypt húsnæði verslunar Blómsturvalla á Hellissandi. Verslunarrekstri var hætt í húsinu fyrir þremur árum. Bjarni segir í samtali við Skessuhorn að hann og kona hans komi til með að búa í húsinu ásamt því að verða þar með vinnustofur, sýningarsal á þeirra verkum og halda myndlistarnámskeið…Lesa meira








