Blómsturvellir á Hellissandi. Ljósm. af.

Listamenn kaupa Blómsturvelli og koma sér þar fyrir

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Listamennirnir Bjarni Sigurbjörnsson og eiginkona hans Ragnheiður Guðmundsdóttir hafa keypt húsnæði verslunar Blómsturvalla á Hellissandi. Verslunarrekstri var hætt í húsinu fyrir þremur árum. Bjarni segir í samtali við Skessuhorn að hann og kona hans komi til með að búa í húsinu ásamt því að verða þar með vinnustofur, sýningarsal á þeirra verkum og halda myndlistarnámskeið bæði fyrir innlenda sem og erlenda listamenn.\r\n\r\n„Við stefnum á að verða með þrjú gestaherbergi fyrir þá sem koma á námskeið til okkar ásamt því að bjóða upp á mat fyrir listamennina. Ég verð með 150 fermetra vinnustofu,“ segir Bjarni og bætir við að hann sé að mála fremur stór verk. Ragnheiður verður með 80 fermetra vinnustofu. „Þetta er allavega svona grunnhugmyndin í byrjun,“ segir Bjarni. Hann segist hafa verið að skoða húsnæði úti á landi og svo datt hann á þetta hús þegar hann var í heimsókn í Hvíta húsinu á Hellissandi sem Elva Hreiðarsdóttir á. „Ég er hrifinn af náttúrunni hér á Snæfellsnesi, eins og Snæfellsjökli og ýmsum fleiri heillandi stöðum. En námskeiðin koma til með að verða í tengingu við umhverfið og náttúruna hér á svæðinu. Við erum með vinnustofu í Kópavogi sem við munum svo selja og flytja hingað vestur um mánaðamótin.“\r\n\r\nBjarni er hagleiksmaður, gerir helst allt sjálfur, en vill einbeita sér að myndlistinni. Hann vinnur fyrir sér með kennslu og námskeiðahaldi ásamt því að selja málverk. Hann segist skipta vinnuvikunni nokkurn veginn jafnt á milli kennslu og vinnu við myndlistina. „Ég lít fyrst og fremst á mig sem myndlistarmann,“ segir hann og bendir á að stærð verkanna komi ekki að sök. „Er ekki orðin svo mikil lofthæð hjá flestum?“",
  "innerBlocks": []
}
Listamenn kaupa Blómsturvelli og koma sér þar fyrir - Skessuhorn