Fréttir

true

Öryrkjar áttu að fá eingreiðslu fyrir helgi

Alls fengu 24.900 manns eingreiðslu sl. föstudag þegar Tryggingastofnun afgreiddi eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega. Alþingi samþykkti frumvarp þess efnis síðastliðinn miðvikudag. Eingreiðsluna fá þeir sem eiga rétt á greiðslu örorku- eða endurhæfingarlífeyris á árinu 2022 og er hún 60.300 kr. Hafi lífeyrisþegi fengið greitt hluta úr ári er eingreiðslan í hlutfalli við greiðsluréttindi viðkomandi…Lesa meira

true

Fjöliðjan fékk tvö hjartastuðtæki að gjöf

Slysavarnadeildin Líf kom færandi hendi á jólahátíð Fjöliðjunnar sem haldin var í dag í Jónsbúð á Akranesi. Þar var starfsfólk Fjöliðjunnar samankomið til að borða góðan mat og eiga notalega stund, syngja saman og dansa. Slysavarnadeildin færði Fjöliðjunni tvö hjartastuðtæki að gjöf, þó með von um að aldrei þyrfti að nota þau. Tækin eru tvö…Lesa meira

true

Ekki skortur á heitu vatni í bili

Þrátt fyrir talsvert kalda daga undanfarið hefur ekki gætt skorts á heitu vatni á þeim svæðum á Vesturlandi sem Veitur ohf. annast. Í samtali við Skessuhorn sagði Gissur Ágústsson rekstrarstjóri fyrirtækisins að kerfið stæði undir álaginu en þó væri Deildartungu aðveituæðin sem stendur fullnýtt, en hún gefur um 220 sekúndulítra. Spáð er áframhaldandi köldu veðri…Lesa meira

true

Álagningarprósenta lækkar í þremur sveitarfélögum en stendur í stað í sex

Akraneskaupstaður og Hvalfjarðarsveit lækka álagsprósentu fasteignaskatta á íbúðarhúsnæði milli áranna 2022 og 2023 til að koma til móts við íbúa vegna mikillar hækkunar á fasteignamati. Íbúar í Stykkishólmi munu einnig njóta prósentulækkunar á næsta ári en í Helgafellssveit er hækkun miðað við síðasta ár. Álagningarhlutfallið verður óbreytt milli ára í Borgarbyggð, Dalabyggð, Grundarfjarðarbæ, Eyja- og…Lesa meira

true

Söngbræður endurvekja veislu sína

Karlakórinn Söngbræður hefur um árabil staðið fyrir mikilli söngveislu í janúarmánuði. Hlé varð á samkomunum í Covid-19 faraldrinum, en nú hefur verið ákveðið að hefja leika að nýju. Boðað er til þjóðlegrar söngveislu í félagsheimilinu Þinghamri á Varmalandi laugardaginn 14. janúar 2023 kl. 20:00. Á matseðli verða: Svið frá Fjallalambi, heit og köld, saltað hrossakjöt…Lesa meira

true

Áskorun til matvælaráðherra frá sveitarstjórn Dalabyggðar

Sveitarstjórn Dalabyggðar skorar á matvælaráðherra að virða það samkomulag sem gert var við undirritun búvörusamninga í febrúar 2016 og fresta fyrirhugaðri niðurtröppun greiðslumarks hjá sauðfjárbændum til 1. janúar 2024. Sveitarstjórnin segir markmið samningsins um aukna verðmætasköpun greinarinnar alls ekki hafa gengið eftir en það hafi verið megin forsenda niðurtröppunar samkvæmt samkomulagi. „Árið 2021 voru rúmlega…Lesa meira

true

Skautasvellið tilbúið til notkunar

Skautasvellið við Krúsina gömlu við Grundaskóla á Akranesi hefur nú verið tekið í notkun. Að sögn Jóns Arnars Sverrissonar garðyrkjustjóra Akraneskaupstaðar er það nú tilbúið, botnfrosið, rennislétt og alveg óhætt að stíga út á það. „Vonandi fær það frið fyrir fljúgandi stórum steinum sem sumum finnst gaman að leika með en verkefnið er alla vega…Lesa meira

true

Snjóar á Snæfellsnesi í kvöld og reiknað með ófærð

Vestan við landið er nú að byggjast upp lægð sem mun hafa áhrif á veðrið næsta sólarhringinn. Í kvöld er reiknað með talsverðri ofankomu og fjúki á Snæfellsnesi. Að líkindum munu vegir teppast þar í nótt og fyrramálið. Þá snjóar einnig suðvestanlands í nótt og fyrramálið, en í minna mæli. Aðal snjókomubakkinn verður þó mjög…Lesa meira

true

Gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu í Dalabyggð

Fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árin 2023-2026 var lögð fram til síðari umræðu í sveitarstjórn og samþykkt einróma á fundi í gær. Áætluð rekstrarniðurstaða samstæðunnar (A og B hluta) árið 2023 er jákvæð um 56,5 milljónir króna sem er breyting til hins betra frá yfirstandandi ári. Nýjasta útkomuspá gerir ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 12 milljónir króna…Lesa meira