
5,3 sauðfjárbú (>300 kindur) eru á hverja 100 íbúa í Dalabyggð. Ljósm. úr safni
Áskorun til matvælaráðherra frá sveitarstjórn Dalabyggðar
Sveitarstjórn Dalabyggðar skorar á matvælaráðherra að virða það samkomulag sem gert var við undirritun búvörusamninga í febrúar 2016 og fresta fyrirhugaðri niðurtröppun greiðslumarks hjá sauðfjárbændum til 1. janúar 2024. Sveitarstjórnin segir markmið samningsins um aukna verðmætasköpun greinarinnar alls ekki hafa gengið eftir en það hafi verið megin forsenda niðurtröppunar samkvæmt samkomulagi.