
Útsýnispallur í Búðardal. Ljósm. úr safni/sm.
Gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu í Dalabyggð
Fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árin 2023-2026 var lögð fram til síðari umræðu í sveitarstjórn og samþykkt einróma á fundi í gær. Áætluð rekstrarniðurstaða samstæðunnar (A og B hluta) árið 2023 er jákvæð um 56,5 milljónir króna sem er breyting til hins betra frá yfirstandandi ári. Nýjasta útkomuspá gerir ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 12 milljónir króna á árinu 2022 þannig að hér er um töluverðan viðsnúning að ræða, heildarvelta Dalabyggðar er áætluð 1.357 milljónir króna á árinu 2023.