
Frá vinstri: Hallfríður Jóna Jónsdóttir, Barbara G. Davis, Kristín Ármannsdóttir, Valgerður Guðbjörnsdóttir. Heiðrún Hermannsdóttir og Guðrún Þórðardóttir tóku við gjöfunum fyrir hönd Fjöliðjunnar. Ljósm. gbþ
Fjöliðjan fékk tvö hjartastuðtæki að gjöf
Slysavarnadeildin Líf kom færandi hendi á jólahátíð Fjöliðjunnar sem haldin var í dag í Jónsbúð á Akranesi. Þar var starfsfólk Fjöliðjunnar samankomið til að borða góðan mat og eiga notalega stund, syngja saman og dansa. Slysavarnadeildin færði Fjöliðjunni tvö hjartastuðtæki að gjöf, þó með von um að aldrei þyrfti að nota þau. Tækin eru tvö vegna þess að starfsemi Fjöliðjunnar er á tveimur stöðum. Þetta eru fimmta og sjötta hjartastuðtækið sem Slysavarnadeildin gefur. Fyrsta tækið var gefið Jónsbúð sem er veislusalur Slysavarnadeildarinnar Lífar. Svo hafa tæki verið gefin í Safnaðarheimilið Vinaminni, Brekkubæjarskóla og Grundaskóla.