Húseignir á Akranesi í skammdegissólinni þessa dagana. Ljósm. gj.

Álagningarprósenta lækkar í þremur sveitarfélögum en stendur í stað í sex

Akraneskaupstaður og Hvalfjarðarsveit lækka álagsprósentu fasteignaskatta á íbúðarhúsnæði milli áranna 2022 og 2023 til að koma til móts við íbúa vegna mikillar hækkunar á fasteignamati. Íbúar í Stykkishólmi munu einnig njóta prósentulækkunar á næsta ári en í Helgafellssveit er hækkun miðað við síðasta ár. Álagningarhlutfallið verður óbreytt milli ára í Borgarbyggð, Dalabyggð, Grundarfjarðarbæ, Eyja- og Miklaholtshreppi, Skorradalshreppi og Snæfellsbæ. Íbúar þar geta því vænst hækkunar fasteignagjalda á nýju ári í ljósi hækkunar fasteignaverðs.

Álagningarprósenta lækkar í þremur sveitarfélögum en stendur í stað í sex - Skessuhorn