Fréttir

true

Arnleifur með tveggja ára samning við ÍA

Arnleifur Hjörleifsson er genginn til liðs við Knattspyrnufélag ÍA og hefur skrifað undir samning sem gildir til ársins 2024. Arnleifur er vinstri bakvörður og á að baki alls 91 deildarleik með Skallagrími, Kára og Kórdrengjum og hefur skorað í þeim leikjum níu mörk. Arnleifur sem er fæddur árið 2000 er uppalinn í Ólafsvík en með…Lesa meira

true

Hvassviðri spáð í kvöld – gul viðvörun fram á þriðjudag

Í kvöld tekur gildi gul viðvörun fyrir allt vestanvert landið vegna norðaustan hvassviðris eða storms. Gildir viðvörunin fram á þriðjudagsmorgun. Búast má við því að akstursskilyrði verði afleit þar sem töluverður snjór liggur yfir landinu og því er norðan bylur í kortunum. Við Faxaflóa og Breiðafjörð er spáð norðaustan 15-23 m/s, hvassast verður á Snæfellsnesi,…Lesa meira

true

Enn er ófært eða þæfingsfærð

Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar er nú ófært yfir Bröttubrekku, í Álftafirði, á Skógarströnd og Útnesvegi. Búið er að opna veginn yfir Fróðárheiði en þar er snjóþekja. Unnið er að mokstri víða á Snæfellsnesi. Þæfingur og jafnvel þungfært er víða í uppsveitum Borgarfjarðar en snjóþekja eða hálka er á öðrum leiðum á Vesturlandi. Vegagerðin bendir á að…Lesa meira

true

Sendir til aðstoðar á Suðurnesjum

Svo virðist sem mest hafi snjóað á Suðurnesjunum í lægðinni sem gekk yfir landið frá föstudegi og fram á laugardag með tilheyrandi truflun á samgöngum. Mjög miklar annir hafa verið hjá björgunarsveitum suður með sjó og nú í morgun var kallaður út viðbótar mannskapur m.a. frá Björgunarfélagi Akraness til aðstoðar við að leysa úr fjölda…Lesa meira

true

Njóta þess að renna í snjónum

Líkt og víða á landinu hefur snjóað talsvert í Ólafsvík frá því á föstudaginn, samhliða vindi og skafrenningi. Börnin í Ólafsvík hafa ekki látið blásturinn á sig fá og héldu með sinn snjósleða í Sjómannagarðinn til þess að renna sér. Þetta er bara gaman sögðu þau þegar fréttaritari rakst á þau.Lesa meira

true

„Maður er svo gjarn á að hugsa að maður sé ekki nógu góður“

Skagakonan Ásdís Líndal hlaut nú í nóvember viðurkenningu fyrir íþróttanudd á verðlaunahátíðinni Family first awards sem haldin var á Titanic hótelinu í Belfast á Norður-Írlandi. Ásdís var ásamt fimm kírópraktorum tilnefnd í flokki þerapista. Alls voru viðurkenningar veittar í tólf flokkum en hátíðin sneri að því að verðlauna fólk í framlínustörfum (e. keyworkers) í heilbrigðiskerfinu…Lesa meira

true

Færð víða erfið – Kjalarnes lokað

Nú er vetrarfærð á vegum víðs vegar á Vesturlandi. Gul viðvörun er í gildi í landshlutanum til klukkan 15 í dag. Hringvegurinn um Kjalarnes er lokaður og sama á við um sunnanverðan Hvalfjörð. Hálka, éljagangur og þæfingsfærð er auk þess víða. Ófært er í Álftafirði á Snæfellsnesi, ófært er á milli Fróðárheiði og Hellna og…Lesa meira

true

Afmæli Silla Ara fært í Hjálmaklett

„Sökum meintra vinsælda Sigvalda Arasonar, Silla í Borgarverki, hefur áður auglýst 85 ára afmælisveizla hans verið færð úr Brákarhlíð í Hjálmaklett (Menntaskóla Borgarfjarðar),“ segir í tilkynningu. Tímasetning afmælisins verður sú sama, semsagt frá klukkan 12 til 15 á morgun, sunnudaginn 18. desember. „Fínar veitingar, mjög skrýtin ljósmyndasýning og fyndnar ræður. Allir velkomnir meðan kofinn tekur…Lesa meira