
Heildarútkall var á Slökkvilið Borgarbyggðar um klukkan tíu í morgun þegar kviknað hafði í út frá kamínu í sumarhúsi í Hvammslandi niður við Skorradalsvatn. Eigandi hússins var einn í húsinu og tókst honum, að sögn Heiðars Arnar Jónssonar varaslökkviliðsstjóra, að halda eldinum í skefjum og brást hárrétt við með því að loka gluggum og hurðum…Lesa meira








