
Ljósm. mm
Eldur út frá kamínu í sumarhúsi
Heildarútkall var á Slökkvilið Borgarbyggðar um klukkan tíu í morgun þegar kviknað hafði í út frá kamínu í sumarhúsi í Hvammslandi niður við Skorradalsvatn. Eigandi hússins var einn í húsinu og tókst honum, að sögn Heiðars Arnar Jónssonar varaslökkviliðsstjóra, að halda eldinum í skefjum og brást hárrétt við með því að loka gluggum og hurðum svo sem minnst súrefni kæmist að eldinum. Þá sprautaði hann á eldinn með garðslöngu.