Fréttir

true

Fjórða söguskiltið afhjúpað í Hvalfirði

Gísli Einarsson dagskrárgerðarmaður á RÚV mun afhjúpa söguskilti við Hvalfjarðarveg í Hvalfirði neðan við braggahverfið á Miðsandi, sunnudaginn 20. nóvember næstkomandi klukkan 12 á hádegi. Á skiltinu er farið yfir sögu svæðisins sem meðal annars er þekkt fyrir álög sem hvíldu á jörðinni Litlasandi, herstöðina í Hvalfirði og Hvalstöðina. Þetta er fjórða skiltið sem er…Lesa meira

true

Við þurfum að búa til öflugt og gott lið til frambúðar

Rætt við Jón Þór Hauksson þjálfara Skagamanna um tímabilið í sumar Skagamenn léku í sumar fjórða árið í röð í efstu deild karla í knattspyrnu sem nefndist Besta deildin. ÍA lauk leik í næst neðsta sæti deildarinnar með 25 stig úr 27 leikjum og féll í Lengjudeildina ásamt Leikni Reykjavík. ÍA vann sex leiki, gerði…Lesa meira

true

Vel heppnaðir styrktartónleikar minningarsjóðs

Síðastliðinn sunnudag fóru fram í Reykholtskirkju tónleikar til styrktar Minningarsjóði Heimis Klemenzsonar. Fyrir þeim stóðu tónlistarkonurnar Anna Þórhildur Gunnarsdóttir frá Brekku í Norðurárdal, Borgnesingurinn Hanna Ágústa Olgeirsdóttir og Steinunn Þorvaldsdóttir frá Hjarðarholti í Stafholtstungum. Stöllurnar þrjár voru fyrstu styrkþegar sjóðsins þegar úthlutað var úr honum í desember 2020 en þær eru allar nýfluttar heim eftir…Lesa meira

true

Borgarverk átti lægsta boð í gatnaframkvæmdir

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar 14. nóvember sl. voru opnuð tilboð í verkið „Skógarhverfi 3C og 5 – Gatnagerð og lagnir.“ Fjögur tilboð bárust í verkið og var það lægsta frá Borgarverki ehf. og hljóðaði upp á 1.052.350.000 krónur. Íslenskir aðalverktakar ehf. buðu 1.088.156.873 kr en þriðja lægsta tilboð barst frá Þrótti ehf. 1.106.331.850…Lesa meira

true

Lögreglan með æfingu á Vesturlandi í dag

Lögreglan á Vesturlandi hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að æfing verði í umdæminu í dag, fimmtudag. Æfingin er unnin ásamt sérsveit ríkislögreglustjóra og menntastofnun lögreglunnar. Í tilkynningunni segir að fólk geti orðið vart við æfinguna en engin hætta stafi af henni.Lesa meira

true

Aldan fékk góðar gjafir

Fyrr í vikunni færðu ellefu kvenfélagskonur frá Kvenfélagi Borgarness, Öldunni gjafir og áttu góða stund með starfsfólki. Aldan vinnustofa í Borgarnesi er verndaður vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu. Konurnar færðu stofnuninni þyngingarsæng og sérstök slökunargleraugu að gjöf, en þessi búnaður mun meðal annars koma að góðum notum við slökun og til að draga úr…Lesa meira

true

Vantar helst O mínus blóð

Nokkuð góð staða er á öllu blóði á Íslandi þessa dagana en helst er skortur á O mínus blóði sem er svokallað neyðarblóð því hægt er að nota það í neyð fyrir fólk í öðrum blóðflokkum. Auður Kristjánsdóttir hjúkrunarfræðingur í blóðbankabílnum sagði blaðamanni Skessuhorns lítillega frá starfsemi bílsins, en hann kemur nú á u.þ.b. eins…Lesa meira

true

Skinkuhorn hlaðvarp – Rúnar Gíslason

Borgnesingurinn Rúnar Gíslason er viðmælandi Skinkuhorns að þessu sinni. Hann starfar sem rannsóknarlögreglumaður í lögregluumdæmi Suðurnesja og fór yfir helstu þætti starfs síns í Skinkuhornsþætti vikunnar. ,,Þetta gerðist svolítið óvart. Þetta átti að vera sumarstarf en mig langaði að sækja um til að víkka sjóndeildarhringinn. Svo bara festist maður í þessu eins og gjarnan vill…Lesa meira

true

Frístundabíll keyrir nú milli Búðardals og Lauga

Í nóvember býður Íþróttafélagið Undri í Dalabyggð upp á gjaldfrjálsar ferðir í frístundabíl sem ekið er á milli Búðardals og Lauga í Sælingsdal þrisvar í viku en þar eru íþróttahús og sundlaug sveitarfélagsins staðsett. Um er að ræða tilraunaverkefni en Undri fékk einnar milljónar krónu styrk frá Dalabyggð fyrir verkefninu og er því hægt að…Lesa meira

true

Fjórða tunnan kemur um áramótin

Á ráðstefnu um úrgangsmál, sem fram fór á Hótel Hamri í Borgarnesi sl. mánudag, komu fulltrúar sveitarfélaga á Vesturlandi saman til að kynna sér ný lög sem taka munu gildi um næstu áramót og snúa að flokkun sorps. Sorpurðun Vesturlands stóð fyrir ráðstefnunni en frá og með áramótum munu landsmenn innleiða ný lög þar sem…Lesa meira