Fréttir

true

Sameina krafta og stofna Dýralæknasetrið

Nöfnurnar og dýralæknarnir Kristín Þórhallsdóttir og Kristín Inga Karlsdóttir hafa ákveðið að hefja formlegt samstarf með því að stofna Dýralæknasetrið sf. Kristín Þórhallsdóttir er frá Laugalandi í Stafholtstungum í Borgarfirði og hefur rekið dýralæknastofu þar undanfarin sex ár. Hún útskrifaðist frá Kaupmannahafnarháskóla í byrjun árs 2013 og hefur því öðlast tíu ára starfsreynslu. Kristín Þórhalls…Lesa meira

true

Tveir Íslandsmeistaratitlar rötuðu heim í Dali

Íslandsmótið í glímu fór fram í íþróttahúsinu í Reykjahlíð í Mývatnssveit 5. nóvember sl. Vaskur hópur úr Glímufélagi Dalamanna tók þátt í mótinu og gekk vel og fóru tveir Íslandsmeistaratitlar með heim í Dalina að móti loknu. Guðbjört Lóa Þorgrímsdóttir varð Íslandsmeistari í opnum flokki kvenna, þá varð hún í öðru sæti í flokki -75…Lesa meira

true

Hafnarlífið gengur sinn vanagang – MYNDIR

Það er ávallt líf í kringum höfnina í Grundarfirði jafnt virka daga sem um helgar. Síðasti sunnudagur var engin undantekning en þá kom Runólfur SH í land og Guðmundur í Nesi nýtti bræluna á miðunum til að gera stutt stopp í Grundarfirði til að skipta um mann í áhöfn.Lesa meira

true

Snæfell fór létt með Breiðablik b

Snæfell og Breiðablik b áttust við í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í Stykkishólmi. Gengi liðanna í deildinni hefur til þessa verið mjög ólíkt, Snæfell vann í gær sinn áttunda leik í röð á meðan b lið Breiðabliks er enn án sigurs eftir tíu leiki. Það var strax ljóst í…Lesa meira

true

Vörslusvipting á 150 nautgripum

Fréttastofa Ríkissjónvarpsins greindi í gær frá því að starfsmenn Matvælastofnunar hafi frá því á mánudag unnið að því að fjarlægja tæplega 150 nautgripi frá Nýja Bæ í Borgarfirði. Ýmist verður gripunum komið fyrir annars staðar eða sendir í sláturhús. Matvælastofnun hafi ákveðið að svipta eigendur dýrunum vegna þess að þeir gerðu ekki þær úrbætur í…Lesa meira

true

Mesta magn frá upphafi barst í söfnunina Jól í skókassa

Verkefninu Jól í skókassa á vegum KFUM og KFUK á Íslandi hefur undanfarin 19 ár falist í því að gleðja börn í Úkraínu sem búa við bágar aðstæður og gefa þeim nytsamar og góðar jólagjafir. Gjafirnar eru settar í skókassa og til að öll börnin fái svipaðar gjafir eru ákveðnir hlutir sem mælt er með…Lesa meira

true

Ein bjartasta vonin í netöryggismálum

Guðrún Valdís Jónsdóttir frá Akranesi vann til verðlauna á ráðstefnunni Nordic Women In Tech sem fram fór í Gautaborg í Svíþjóð í síðustu viku. Guðrún starfar hjá íslenska fyrirtækinu Syndis sem yfirmaður upplýsingaöryggis og ráðgjafi á því sviði. Guðrún lærði tölvunarfræði í Princeton í Bandaríkjunum og starfaði við netöryggismál í New York áður en hún…Lesa meira

true

Fjölgun í nær öllum sveitarfélögum á Vesturlandi

Íbúar á Vesturlandi voru 17.462 talsins þriðjudaginn 1. nóvember síðastliðinn. Á ellefu mánaða tímabili frá 1. desember 2021 og til 1. nóvember sl. hefur fjölgað í öllum sveitarfélögum á Vesturlandi, utan Dalabyggðar þar sem fækkaði um fjóra á tímabilinu, eða um 0,6%. Athygli vekur að nú vantar einungis 52 upp á íbúafjöldann á Akranesi nái…Lesa meira

true

Sex í sama rúmi fær góðar viðtökur í Snæfellsbæ

Síðastliðinn fimmtudag frumsýndi leikfélagið Lauga í Snæfellsbæ gamanleikritið Sex í sama rúmi í félagsheimilinu Röst á Hellissandi. Guðmundur Jensson, formaður leikfélagsins Laugu, segir í samtali við Skessuhorn að Lauga hafi verið stofnuð í mars á þessu ári. „Það var fyrir tilviljun að ég komst að því að það var búið að leggja niður Leikfélag Ólafsvíkur.…Lesa meira

true

Ný lög um sorpmál setja sveitarfélög í krefjandi stöðu

Ný lög um meðhöndlun úrgangs setja sveitarfélögum skyldur á hendur hvað söfnun og ráðstöfun úrgangs varðar. Skylt verður um næstu áramót að auka sérsöfnun við heimili, svo eitthvað sé nefnt en breytingar má rekja til nýrrar úrgangslöggjafar í Evrópu. Við innleiðingu laganna fengu sveitarfélög og atvinnulíf góðan tíma til umsagnar á lögunum og hefur greinargóð…Lesa meira