Leikarar og leikstjóri stilltu sér upp til myndatöku eftir general prufuna.

Sex í sama rúmi fær góðar viðtökur í Snæfellsbæ

Síðastliðinn fimmtudag frumsýndi leikfélagið Lauga í Snæfellsbæ gamanleikritið Sex í sama rúmi í félagsheimilinu Röst á Hellissandi. Guðmundur Jensson, formaður leikfélagsins Laugu, segir í samtali við Skessuhorn að Lauga hafi verið stofnuð í mars á þessu ári. „Það var fyrir tilviljun að ég komst að því að það var búið að leggja niður Leikfélag Ólafsvíkur. Þá fékk ég nokkra í lið með mér til þess að stofna þetta leikfélag sem ber nafnið Lauga, en það er nefnt eftir Sigurlaugu Heiðrúnu Jóhannsdóttir sem var hjartað í Leikfélagi Ólafsvíkur – en hún sá m.a. um að hýsa leikstjóra, sjá um miðasölu og redda öllu fyrir leikfélagið. Nafnið var því sjálfgefið og kom aldrei annað til greina en að láta þetta nýstofnaða leikfélagi heita Lauga. Þaðvar hins vegar þrautinni þyngri að fá kennitölu og það tók sinn tíma að eiga við hið opinbera,“ sagði Guðmundur.

Sex í sama rúmi fær góðar viðtökur í Snæfellsbæ - Skessuhorn